Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 15. janúar 2020 Mál nr. S - 6926/2019 : Lögreglustjórinn á höfuðborgars væðinu ( Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari ) g egn Jón i Sigurðs syni Dómur Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. nóvember 2019, á hendur Jóni Sigurðssyni, kt. [...] , [...] , fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, með því að hafa: I. Þriðjudaginn 18. desember 20 18, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana - og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 135 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 2,2 ng/ml) um Breiðholtsbraut við Jaðarsel í Reykjavík, þar sem lögregla stöð vaði aksturinn. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. II. Laugardaginn 20. apríl 2019, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (í blóði mæ Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þess er krafist a ð ákærði verði dæmdur til refsingar , til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. 2 Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið bir t ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a - lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins. Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins te lst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur í [...] . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 20. nóvember 2019 , gekkst ákærði undir greiðslu sektar með lögreglustjórasátt 9. febrúar 2012 fyrir að ak a undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Þá gekkst hann aftur undir greiðslu sektar með viðurlagaákvörðun 5. janúar 2016 meðal annars fyrir að akstur undir áhrifum áfengis. Næst var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi 15. maí 2017 fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Loks var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi 17. janúar 2018 meðal annars fyrir að akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti , en um var að ræða hegningarauka við dóminn frá 15. maí 2017. Ve rður miðað við það við ákvörðun refsingar að ákærði hafi með brotum sínum nú gerst sekur að aka undir áhrifum ávana - og fíkniefna í fjórða skipti og sekur um að aka sviptur ökurétti í annað skipti, sbr. ítrekunarramma 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði . Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Ákærði greiði 159.296 krónur í sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari . Harpa Sólveig Björnsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn. D Ó M S O R Ð: Ákærði, Jón Sigurðsson , sæti fangelsi í 3 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Ákærði greiði 159.296 krónur í sakarkostnað. Harpa Sólveig Björnsdóttir