Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur 22. september 2021 Mál nr. S - 3722/2021 : Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ( Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi ) g egn Adam Tomasz Piotrowski Dómur Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. júlí 2021, á hendur Adam Tomasz Piotrowski, kt. [...] , [...] , [...] , fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 27. apríl 2020, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um Bíldshöfða í Reykjavík, við Þórðarhöfða, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þe gar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt . Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákæ rði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfær t til refsiákvæð is í ákæru. Ákærði er fæddur í [...] . Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 8. júlí 2021, á ákærði að baki sakarferil sem nær aftur til ársins 2002. Það sem kemur til skoðunar í máli þessu við ákvörðun refsingar eru tveir dómar Héraðsdóms Reykjavíkur , annars vegar 18. nóvember 2009 og hins vegar 6. mars 2014 , þar sem ákærða var gert að sæta fangelsi fyrir meðal annars akstur sviptur ökurétti. Samkvæmt sak arvottorði ákærða lauk hann 2 samfélagsþjónustu þann 14. apríl 2019 vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 6. mars 2014. Að öðru leyti hefur sakarferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu. Samkvæmt 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 falla ítrekunaráhrif niður, ef liðið hafa 5 ár frá því að sökunautur hefur tekið út fyrri refsinguna, eða frá því að hún hefur fallið niður eða verið gefin upp, þangað til hann fremur síðara brotið. Í ljósi þess að ákærði lauk samfélagsþjónustu þan n 14. apríl 2019 vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur 6. mars 2014 og að brot það sem hann er nú ákærður fyrir átti sér stað 27 . apríl 202 0 er nú við það miðað að ákærð a sé í þriðja sinn gerð refsing fyrir akstur sviptur ökurétti innan ítrekunartíma í skilnin gi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 . Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Ba ldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari fyrir Kristínu Einarsdóttur saksóknarfulltrúa. Samúel Gunnarsson , aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn. D Ó M S O R Ð: Ákærði, Adam Tomasz Piotrowski , sæti fangelsi í 30 daga. Samúel Gunnarsson