Um dómstólinn

Héraðsdómur Norðurlands vestra, Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki. Sími: 455-6444.

Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 16.00 alla virka daga.

Dómstjóri er Halldór Halldórsson.

Þingstaður: Héraðsdómur Norðurlands vestra, Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki.

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Regluleg dómþing í einkamálum eru 2. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.00. 

Héraðsdómur Norðurlands vestra starfar samkvæmt lögum nr. 50/2016.

Umdæmi Héraðsdóms Norðurlands vestra er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Akrahreppur, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd.  

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum, ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.