Héraðsdómur Reykjaness Dómur 17. ágúst 2022 Mál nr. S - 1450/2022 : Héraðssaksóknari ( Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari ) g egn Florence Osahenwinda ( Úlfar Guðmundsson lögmaður ) Dómur : I Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fyrr í dag , er höfðað með ákæru héraðssaksóknara dags. 11. ágúst 2022 á hendur ákærðu Florence Osahenwinda, fædd , ríkisborgara . Málið er höfðað gegn ákærð u fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 24. júní 2022 staðið að innflutningi á samtals 746,35 g af kókaíni (með 77 - 79% styrkleika, sem samsvarar 86 - 88% af kókaínklóríði), ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, en fíknief nin flutti ákærða innvortis frá Hollandi til Brussel í Belgíu og þaðan sem farþegi með flugi FI - 555 til Íslands. Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu all s sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á 746,35 g af kókaíni, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018 . Verjandi ákærðu gerir þá kröfu að hún verði dæmd til þeirrar vægustu refsingar sem lög frekast heimila og til frádráttar refsingunni komi gæsluvarðhaldsvist sem ákærða hefur sætt frá 25. júní sl. Þá krefst verjandinn málsvarnarlauna samkvæmt málskostnað arreikningi. 2 II Fyrir dómi játaði ákærða afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru og samþykkti upptökukröfu. Dómari telur ekki ástæðu til að draga í efa að játningin sé sannleikanum samkvæm enda er hún í samræmi við rannsóknargögn málsins. Var því f arið með má lið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. M álið var því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærðu h afði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Með skýlausri játningu ákær ðu fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða. Hefur ákærða unnið sér til refsingar samkvæmt því. II I Ákærða hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverði háttsemi svo kunnugt sé. Hún flutti hingað til lands 746,35 grömm af kókaíni (með 77 - 79% styrkleika, sem samsvarar 86 - 88% af kókaínklóríði) ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Ekkert hefur k omið fram um það að ákærða hafi verið eigandi efnisins né tekið þátt í skipulagningu á kaupum og innflutningi þess til Íslands með öðrum hætti en þeim að samþykkja að flytja efnin til landsins gegn greiðslu. Verður litið til þessa við ákvörðun refsingar se m og til greiðrar játningar ákærðu hjá lögreglu og fyrir dómi. Að þessu virtu og með hliðsjón af dómaframkvæmd þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Til frádráttar refsivistinni komi með fullri dagatölu gæsluvarðhaldsvist sem ákærð a hefur sætt frá 25. júní sl. til dagsins í dag, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt ofangreindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Ákærða skal því sæta upptöku á 746,35 grömmum a f kókaíni, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana - og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Ákærða skal greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Úlfars Guðmundssonar lögman ns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af umfangi málsins 976.500 krónur 3 að meðtöldum virðisaukaskatti. Verjandi ákærða gerði athugasemdir við að til sakarkostnaðar teldust þrír reikningar frá Símanum samtals að fjárhæð 64.200 krónur þar sem fyrirtæki nu hafi verið skylt að afhenda lögreglu tilteknar upplýsingar og því ætti ekki að taka gjald fyrir það. Ekki verður annað séð en þessi kostnaður sé tilkominn vegna rannsóknar málsins og getur þar engu breytt þó Símanum hafi verið skylt að afhenda lögreglu umræddar upplýsingar. Í samræmi við þetta skal ákærða greiða annan sakarkostnað 581.612 krónur. Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari. Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan . D ó m s o r ð: Ákærða, Fl orence Osahenwinda, sæti fangelsi í tólf mánuði en til frádráttar refsivistinni komi með fullri dagatölu gæsluvarðhaldsvist sem hún hefur sætt frá 25. júní 2022 til dagsins í dag. Ákærða sæti upptöku til ríkissjóðs á 746,35 grömmum af kókaíni. Ák ærða gre iði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, 976.500 og annan sakarkostnað 581.612 krónur. Ingi Tryggvason