• Lykilorð:
  • Skjalafals

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 16. október 2018 í máli nr. S-316/2018:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

 

            Mál þetta sem dómtekið er í dag var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þann 29. maí 2018 „á hendur X, kt. [...], [...], fyrir skjalafals með því að hafa í tengslum við umsókn sína hjá Samgöngustofu um endurútgáfu flugliðaskírteinis, dags. 8. september 2015, lagt fram falsað afrit af hæfniprófi fyrir BD-700 tegundaráritun í því skyni að fá BD-700 áritun í flugliðaskírteini sitt án þess að hafa lokið tilskilinni upprifjunarþjálfun fyrir slíka áritun hjá samþykktu þjálfunarfyrirtæki. Ákærði falsaði afrit af hæfniprófi fyrir BD-700 tegundaráritun, á tímabilinu 29. ágúst til 10. september 2015, með því að breyta skýrslu um hæfnipróf fyrir CL604/605 tegundaráritun, dags. 29. ágúst 2015, sem ákærði fékk eftir að hafa staðist hæfnipróf fyrir CL604/605 áritun hjá samþykktu þjálfunarfyrirtæki, þannig að CL604/605 skýrslan liti út fyrir að vera um hæfnipróf fyrir BD-700 tegundaráritun.

            Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

            Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

            Ákærða var birt fyrirkall sem hafði að geyma viðvörun samkvæmt 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Þrátt fyrir þetta sótti ákærði ekki þing og ekki var kunnugt um að hann væri forfallaður. Málið verður því dæmt á grundvelli framlagðra gagna og samkvæmt þeim hefur verið færð fram næg sönnun fyrir sekt ákærða. Hann verður því sakfelldur samkvæmt ákærunni, en brot hans er þar rétt fært til refsiákvæðis.

            Ákærði er fæddur í [...] [...]. Hann hefur einu sinni gengist undir sátt vegna tollalagabrots. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

            Engan kostnað leiddi af meðferð málsins.

            Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness aðstoðarsaksóknari.

            Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

 

                                                              D Ó M S O R Ð :

            Ákærði, X, sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.