- Umferðarlagabrot
- Ökuréttarsvipting
- Ölvunarakstur
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 17.
október 2018 í máli nr. S-243/2018:
Ákæruvaldið
(Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Edward Adam Bystrek
Mál
þetta, sem var tekið til dóms 19. september 2018, höfðaði lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu með ákæru 22. maí 2018, á hendur Edward Adam Bystrek, kt. 000000-0000,
[...]: ,,fyrir eftirtalin umferðarlagabrot með því að hafa:
I
Fimmtudaginn
3. ágúst 2017 í Reykjavík ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti um
Kringlumýrarbraut við Háaleitisbraut uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
II
Föstudaginn
4. ágúst 2017 í Kópavogi ekið sömu bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum
áfengis (vínandamagn í blóði 0,89 ‰) suður Suðurbraut og inn á Kópavogsbraut
til vesturs uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar við gatnamót Suðurvarar og
Þinghólsbrautar.
III
Mánudaginn
5. febrúar 2018 í Reykjavík ekið sömu bifreið án lögboðinnar vátryggingar,
sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,21 ‰) suður
Kringlumýrarbraut við Bústaðaveg þar sem hann misst stjórn á bifreiðinni og ók
utan í bifreiðina [...], sem ekið var á vinstri akrein í sömu akstursstefnu en
stöðvaðist við vegrið við hægri akreinina, og akstur [...] stöðvaðist eftir
áreksturinn við vegrið upp á kanti við vinstri akreinina.
Teljast
brot í öllum liðum varða við 1. mgr. 48.
gr., og brot í lið II auk þess við 1. sbr. 2. mgr. 45 gr., en brot í lið III
auk þess við 1. sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 93. gr., allt sbr. 1. mgr. 100.
gr. umferðalaga nr. 50/1987.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls
sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu
ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr.
44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.“
Ákærði
sótti ekki þing við þingfestingu málsins 19. september 2018 og boðaði ekki
forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru birt ákærða 18. júlí 2018 var tekið
fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist
hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið þau brot
sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum
fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Með
vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað
að ákærði hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hans réttilega
heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði
er fæddur 1956 og hefur tvisvar áður sætt refsingu samkvæmt framlögðu
sakavottorði. Með sektargerð lögreglustjóra 23. maí 2017 samþykkti ákærði greiðslu
sektar að fjárhæð 175.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í átján mánuði
fyrir brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 10. gr. umferðarlaga nr.
50/1987. Ákærði samþykkti greiðslu sektar að fjárhæð 260.000 krónur og að sæta sviptingu
ökuréttar í þrjú ár með sektargerð lögreglustjóra 14. nóvember 2017 fyrir að
aka bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis.
Brot
ákærða samkvæmt I. og II. lið ákærunnar voru framin 3. og 4. ágúst 2017 eða
fyrir afgreiðslu áðurnefndrar sektargerðar lögreglustjóra frá 14. nóvember
2017. Við ákvörðun refsingar ákærða verður því eftir því sem við á litið til
78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. og einnig 77. gr. sömu laga.
Að
framangreindum sakaferli og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega
ákveðin fangelsi í 45 daga.
Með vísan til framangreinds ber, í
samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. gr. og 102. gr.
umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá birtingu dóms
þessa að telja.
Með
vísan til sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um
meðferð sakamála, verður ákærða gert að greiða sakarkostnað málsins sem
samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda og með stoð í öðrum gögnum málsins nemur
samtals 97.020 krónum.
Margrét
Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D
Ó M S O R Ð:
Ákærði, Edward
Adam Bystrek, sæti fangelsi í 45 daga.
Ákærði er sviptur
ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Ákærði greiði
97.020 krónur í sakarkostnað.
Margrét Halldóra
Hallgrímsdóttir