• Lykilorð:
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 14. desember 2018 í máli nr. S-439/2018:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Hákoni Má Jósepssyni

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 16. nóvember 2018, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 24. september 2018, á hendur Hákoni Má Jósepssyni, kt. 000000-0000, [...]:

,,I.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 12. maí 2018, ekið torfæruhjólinu [...], á Reykjanesbraut við hringtorgið á Fitjum, Reykjanesbæ, sviptur ökuréttindum.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. laga nr. 50/1987, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

II.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 28. maí 2018, ekið bifreiðinni [...], sviptur ökuréttindum og undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (25 ng/ml amfetamín í blóði) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega, vestur Hafnargötu, Reykjanesbæ.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, og 3. gr. laga nr. 24/2007 og 1. mgr. 48. gr. laga nr. 50/1987, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr.  umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993, lög nr. 57/1997 og lög nr. 69/2007.“

 

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins 16. nóvember 2018 og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru birt ákærða 5. nóvember 2018 var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið þau brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákærði er [...] og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2016.  Ákærði gekkst undir sektgerð lögreglustjóra 15. desember 2016 þess efnis að ákærði samþykkti greiðslu sektar að fjárhæð 220.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í 12 mánuði fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fíkniefnalagabrot, en brotið framdi ákærði 4. september 2016. Með sektargerð lögreglustjóra 23. janúar 2017 samþykkti ákærði greiðslu sektar að fjárhæð 95.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í tvo mánuði frá 15. desember 2017 að telja fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur án þess að endurnýja ökuskírteini sitt. Brotin framdi ákærði 22. júlí 2016 eða fyrir afgreiðslu áðurnefndrar sektargerðar frá 15. desember 2016, og var ákærða því gerður hegningarauki við hana samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði gekkst undir þrjár sektargerðir lögreglustjóra 18. ágúst 2017 vegna umferðarlagabrota, en brotin framdi ákærði öll eftir afgreiðslu áðurnefndrar sektargerðar frá 23. janúar 2017. Með sektargerðunum samþykkti ákærði greiðslu sekta og að sæta tímabundinni sviptingu ökuréttar til 15. febrúar 2021 fyrir að hafa þrisvar sinnum ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af í tvö skipti jafnframt undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með sektargerð lögreglustjóra 4. desember 2017 samþykkti ákærði greiðslu sektar að fjárhæð 210.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í 12 mánuði frá 15. febrúar 2021 að telja fyrir hraðakstur, akstur sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brotin framdi ákærði 22. júní 2017, eða fyrir afgreiðslu áðurnefndra sektagerða 18. ágúst 2017 og var honum því gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi 16. febrúar 2018 var ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt. Í málinu var ákærði sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brotin framdi ákærði 27. ágúst 2017 og 8. október 2017 eða fyrir afgreiðslu áðurnefndrar sektargerðar frá 4. desember 2017 og var ákærða því gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga.

Að framangreindum sakaferli og brotum ákærða virtum, sbr. og einnig með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða samkvæmt dómvenju hæfilega ákveðin 90 daga fangelsi.

Með vísan til 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar sem, samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda um slíkan kostnað og með stoð í öðrum framlögðum gögnum, nemur samtals 101.206 krónum.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Hákon Már Jósepsson, sæti fangelsi í 90 daga.

            Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

            Ákærði greiði 101.206 krónur í sakarkostnað.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir