• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Skjalafals

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 14. desember 2018 í máli nr. S-440/2018:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Emin Akhmedau

(Úlfar Guðmundsson lögmaður)

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 16. nóvember 2018, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 17. september 2018, á hendur Emin Akhmedau, fæddum [...], sem kveðst vera frá Rússlandi:

,,fyrir skjalafals, með því að hafa, þriðjudaginn 7. ágúst 2018, framvísað við tollgæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann kom til landsins með flugi nr. [...] frá Osló, Noregi, grunnfölsuðu kennivottorði frá Tékklandi nr. [...] á nafni [...], f.d. 16.08.1981, útgefnu þann 21.05.2013 með gildistíma til 21.05.2023.

            Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar“.

            Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir skipaður verjandi kröfu um hæfilega þóknun sér til handa vegna starfa á rannsóknarstigi og fyrir dómi.

 

Við þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Sakavottorð ákærða liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ákærði geti talist hafa stöðu flóttamanns. Eins og málið liggur fyrir þykja því ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Að framangreindu virtu og með hliðsjón af dómaframkvæmd þykir refsing ákærða því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað málsins, sem er þóknun skipaðs verjanda hans á rannsóknarstigi og fyrir dómi, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin 147.560 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Emin Akhmedau, fæddur 16. ágúst 1981, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Úlfars Guðmundssonar lögmanns, 147.560 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir