• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skjalafals

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 13. mars 2019 í máli nr. S-76/2019:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Levan Nemsadze

(Ásta Björk Eiríksdóttir lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 21. febrúar 2019, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum útgefinni 6. febrúar 2019 á hendur ákærða, Levan Nemsadze, fæddum [...], georgískum ríkisborgara;

fyrir skjalafals, með því að hafa, fimmtudaginn 17. janúar 2019, framvísað við landamæragæslu í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann var á leið til Toronto, Kanada, með flugi WW213, breytifölsuðu vegabréfi frá Lettlandi, ánöfnuðu [...], fd. [...], nr. [...] með gildistíma 25.02.2013 til 24.02.2023.

 Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Við þingfestingu máls þessa játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Játning ákærða fær stoð í gögnum málsins. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Sakavottorð ákærða, sem er georgískur ríkisborgari, liggur ekki frammi í málinu. Engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða. Svo sem málið liggur fyrir þykja ekki vera efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessu. Refsing ákærða þykir samkvæmt því réttilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

Eftir úrslitum málsins ber samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar. Ákærði greiði því þóknun skipaðs verjanda síns, Ástu Bjarkar Eiríksdóttur lögmanns, er hæfilega þykir ákveðin svo sem í dómsorði greinir, en annan sakarkostnað leiddi ekki af rannsókn málsins og rekstri þess hér fyrir dómi.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Levan Nemsadze, fæddur [...], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Ástu Bjarkar Eiríksdóttur lögmanns, 158.100 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

 

Kristinn Halldórsson