• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Umferðarlagabrot

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness mánudaginn 8. október 2018 í máli nr. S-183/2018:

 

Ákæruvaldið

(Einar E. Laxness aðstoðarsaksóknari)

gegn

Hafsteini Thorberg Pálssyni

(Oddgeir Einarsson lögmaður)

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 24. september 2018, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 10. apríl 2018, á hendur Hafsteini Thorberg Pálssyni, kt. 000000-0000, [...]: ,,fyrir eftirtalin umferðarlagabrot framin á árinu 2017 í Hafnarfirði,  með því að hafa:

            1. Fimmtudaginn 17. ágúst, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti við Flatahraun,  þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.

            2.  Sunnudaginn 27. ágúst, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti við Ásbraut við Ásvelli,  þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

            Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar.

            Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

            Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þau brot sem honum eru gefin að sök og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.

            Ákærði er fæddur árið 1974 og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 1993. Ákærða hefur í allnokkrum tilvikum verið gerð refsing, meðal annars fyrir þjófnaði, fíkniefnalagabrot, áfengislagabrot og umferðarlagabrot. Við úrlausn þessa máls hefur eftirfarandi áhrif: Með sektargerð lögreglustjóra 24. september 2013 samþykkti ákærði greiðslu sektar að fjárhæð 130.000 krónur og fjögurra mánaða sviptingu ökuréttar fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna 29. júní 2013. Ákærði gekkst undir sektargerð lögreglustjóra 17. mars 2014 fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptur ökurétti þess efnis að ákærði samþykkti greiðslu sektar að fjárhæð 200.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í tvö ár. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 22. október 2014 var ákærði dæmdur í sextíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti, þar af í annað skiptið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness 13. desember 2016 fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti 15. júlí 2016. Í síðastnefnda dómnum greinir frá því að ákærði hafi lagt fram gögn um að hann hafi ekki ekið sviptur ökurétti er hann ók bifreið 29. júní 2013, sbr. áðurnefnda sektargerð dags. 24. september sama ár, heldur hafði ákærði fengið ökuskírteini sitt endurútgefið að nýju 4. september 2012 og hafði ekki verið sviptur ökurétti í millitíðinni.

            Með hliðsjón af framangreindu, og að brotum ákærða virtum, sbr. og jafnframt með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin samkvæmt dómvenju 90 daga fangelsi.

            Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærða gert að greiða sakarkostnað málsins, sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Oddgeirs Einarssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 105.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

            Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Hafsteinn Thorberg Pálsson, sæti fangelsi í 90 daga.

            Ákærði greiði 105.400 krónur í sakarkostnað, sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Oddgeirs Einarssonar lögmanns.

 

                                                Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir