• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn 29. janúar 2019 í máli nr. S-434/2018:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Theodóri Hertervig Línusyni

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 11. janúar 2019, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 24. september 2018 á hendur Theodóri Hertervig Línussyni, kt. 000000-0000, [...];  

,,fyrir eftirtalin umferðarlagabrot [...]

I.

          Með því að hafa, laugardaginn 21. apríl 2018, ekið bifreiðinni  [...] á Þjóðbraut og inn á Krossmóa, Reykjanesbæ, undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (70 ng/ml amfetamín í blóði og 30 ng/ml af kókaíni í blóð) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. sbr. 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. 

II.

          Með því að hafa, mánudaginn 21. maí 2018, ekið bifreiðinni [...] vestur Skólaveg, Reykjanesbæ, undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (295 ng/ml amfetamín í blóði) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

          Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er jafnframt krafist að ákærða verði gert að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993 og lög nr. 66/2006.“

          Þann 16. nóvember 2018 var mál nr. S-451/2018 sameinað máli þessu, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Málið höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 1. október 2018;

,,fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 17. júní 2018, á [...], haft í vörslum sínum samtals 15 stk. kannabisplöntur og hafa um skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur, sem fundust [...].

Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 4., sbr. 4. gr. a, sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að gerðar verði upptækar, framangreindar 15 kannabisplöntur samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 10/1997 og 68/2001, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerð nr. 233/2001. Jafnframt er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að sæta upptöku á 3 stk. gróðurhúsalömpum, sem lögreglan lagði hald á samkvæmt heimild í 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

 

Ákærði sótti ekki þing við fyrirtöku málsins 11. janúar 2019 og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru birt ákærða 3. janúar 2019 var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið þau brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákærði er fæddur [...] og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2007. Við ákvörðun refsingar ákærða í máli þessu hefur eftirfarandi áhrif; Með dómi 10. nóvember 2008 var ákærði dæmdur til greiðslu sektar að fjárhæð 140.000 krónur og til að sæta eins árs ökuréttarsviptingu fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi 21. apríl 2009 var ákærði dæmdur til greiðslu 140.000 króna sektar og sviptur ökurétti í eitt ár fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna 4. ágúst 2008. Ákærði gekkst undir sektargerð lögreglustjóra 17. mars 2014 þess efnis að ákærði samþykkti greiðslu sektar að fjárhæð 200.000 krónur og var sviptur ökurétti í tvö ár fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi 6. mars 2018 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt fyrir að hafa tvívegis á árinu 2017 ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en með sama dómi var ákærði jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot.

Samkvæmt framangreindu um sakaferil ákærða og að brotum hans virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu tveggja mánaða af refsingunni og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með vísan til 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 verður ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerð upptækar 15 kannabisplöntur og 3 gróðurhúsalampar.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem, samkvæmt framlögðum yfirlitum sækjanda um slíkan kostnað og með stoð í öðrum gögnum, nemur samtals 336.488 krónum.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Theodór Hertervig Línuson, sæti fangelsi í fimm mánuði en fresta skal fullnustu tveggja mánaða refsingarinnar og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

            Ákærði sæti upptöku á 15 kannabisplöntum og 3 gróðurhúsalömpum.

Ákærði greiði 336.488 krónur í sakarkostnað.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir