• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skjalabrot

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness fimmtudaginn 6. desember 2018 í máli nr. S-516/2018:

Ákæruvaldið

(Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Tajudin Abass

(Dóris Ósk Guðjónsdóttir lögmaður)

 

I

Mál þetta, sem dómtekið var 28. nóvember 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum 8. október 2018 á hendur ákærða, Tajudin Abass, fæddum [...], ríkisborgara frá Kenýa,

„fyrir misnotkun skjala, með því að hafa, sunnudaginn 5. ágúst 2018, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, er hann var að koma með flugi [...] frá Kaupmannahöfn, Danmörku og á leið með flugi [...] til Montreal, Kanada, framvísað við landamærayfirvöld, í blekkingarskyni, sænsku vegabréfi nr. [...], á nafni A, fd. [...], með gildistíma frá [...] til [...] og sænsku kennivottorði nr. [...] á nafni sama aðila með gildistíma frá [...] til [...].

       Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. 

Ákærði játar sök og krefst þess aðallega að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið, en til vara krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði þá bundin skilorði. Þá gerir skipaður verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa að mati dómsins.

II

Við þingfestingu málsins játaði ákærði brot sitt án undandráttar, en kvaðst vera sómalskur ríkisborgari. Fær játning hans stoð í gögnum málsins. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og skipuðum verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, en eins og fram er komið kveðst hann vera sómalskur ríkisborgari. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af þeirri staðreynd, sem og skýlausri játningu ákærða. Eins og mál þetta liggur fyrir þykja ekki efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessum. Verður refsing ákærða samkvæmt því ákveðin fangelsi í 30 daga.

Með hliðsjón af úrslitum málsins og vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar. Er þar um að ræða þóknun skipaðs verjanda ákærða, Dórisar Óskar Guðjónsdóttur  lögmanns, sem ákveðst 84.320 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ingimundur Einarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Tajudin Abass, sem fæddur er [...], sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Dórisar Óskar Guðjónsdóttur lögmanns, 84.320 krónur. 

 

Ingimundur Einarsson