- Staðgreiðsla opinberra gjalda
- Virðisaukaskattur
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness 4. október 2018 í máli nr. S-189/2018:
Ákæruvaldið
(Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Auðuni Þór Almarssyni
Mál þetta,
sem dómtekið var 19. september, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni
12. apríl 2018, á hendur Auðuni Þór Almarssyni, kt. 000000-0000, [...], „fyrir meiri háttar brot
gegn skattalögum sem framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins Final, kt. 000000-0000,
nú gjaldþrota, með því að hafa:
1.
Eigi staðið skil á
virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélagsins á lögmæltum tíma vegna uppgjörstímabilanna
mars – apríl, maí – júní, júlí – ágúst og nóvember - desember rekstrarárið 2015
og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í
rekstri einkahlutafélagsins, vegna sömu uppgjörstímabila, í samræmi við
fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð
kr. 5.995.932, sem sundurliðast sem hér greinir:
Árið 2015
mars – apríl kr. 212.754
maí
– júní kr. 1.702.608
júlí
– ágúst kr. 3.400.911
nóvember
– desember kr. 679.659
kr. 5.995.932
2.
Eigi staðið skil á
skilagreinum einkahlutafélagsins vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á
lögmæltum tíma vegna greiðslutímabilanna október og desember rekstrarárið 2013
og janúar til og með júní, ágúst, september, nóvember og desember rekstrarárið
2014 og janúar, febrúar, maí til og með desember rekstrarárið 2015 og janúar og
febrúar rekstrarárið 2016 og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu
opinberra gjalda, í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu
opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna
einkahlutafélagsins vegna greiðslutímabilanna október rekstrarárið 2013 til og
með febrúar rekstrarárið 2016, samtals að fjárhæð kr. 8.154.467, sem
sundurliðast sem hér greinir:
Árið 2013
október kr. 76.238
nóvember kr. 281.689
desember kr. 256.544
kr.
614.471
Árið 2014
janúar kr. 278.668
febrúar kr. 135.438
mars kr. 229.563
apríl kr. 327.307
maí kr. 344.321
júní kr. 305.244
júlí kr. 412.201
ágúst kr. 230.497
september kr. 300.604
október kr. 244.564
nóvember kr. 341.734
desember kr. 221.658
kr.
3.371.799
Árið 2015
janúar kr. 270.996
febrúar kr. 321.795
mars kr. 323.926
apríl kr. 274.975
maí kr. 288.805
júní kr. 313.941
júlí kr. 466.314
ágúst kr. 327.291
september kr. 318.357
október kr. 444.972
nóvember kr. 464.246
desember kr. 183.451
kr. 3.999.069
Árið 2016
janúar kr. 102.281
febrúar kr.
66.847
kr.
169.128
Samtals: kr. 8.154.467
Framangreind brot ákærða samkvæmt 1. og 2. tölulið ákæru
teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1.
gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:
a)
1. mgr. 40. gr.
laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr.
laga nr. 134/2005, að því er varðar 1. tölulið ákæru.
b)
2. mgr. 30. gr. laga
nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og
1. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 2. tölulið ákæru.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og
til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Fyrir dómi játaði ákærði sök samkvæmt ákæru. Með játningu sinni, sem fær næga stoð í gögnum málsins og ekki þykir ástæða til að draga í efa, telst hann sannur að sök og hefur unnið sér til refsingar en háttsemi hans er rétt færð til refsiákvæða í ákæru. Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki áður framið refsivert brot. Ekki eru uppfyllt skilyrði 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, sbr. 3. gr. laga nr. 134/2005, og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2005, til að færa sekt niður úr lögbundnu lágmarki. Refsing ákærða ákveðst fangelsi í átta mánuði og 28.300.000 króna sekt í ríkissjóð. Fullnustu framangreindrar fangelsisrefsingar skal frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940. Greiði ákærði ekki sektina innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins sæti hann fangelsi í ellefu mánuði. Ekki leiddi sérstakan kostnað af rekstri málsins.
Af hálfu ákæruvaldsins fór Sigríður Árnadóttir aðstoðarsaksóknari með málið.
Þorsteinn Davíðsson kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð
Ákærði, Auðunn Þór Almarsson, sæti fangelsi í átta mánuði. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 28.300.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæti ella ellefu mánaða fangelsi.
Þorsteinn Davíðsson