• Lykilorð:
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 30. janúar 2019 í máli nr. S-519/2018:

 

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Guðmundi Kristjáni Kristjónssyni

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 9. janúar 2019, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu á hendur Guðmundi Kristjáni Kristjónssyni, kt. 000000-0000, [...];

,,fyrir umferðarlagabrot í Garðabæ með því að hafa að kvöldi föstudagsins 8. júní 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 645 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 9,6 ng/ml, í þvagi mældist metamfetamín) um Hafnarfjarðarveg við Litlatún uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

Telst brot þetta varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“

 

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins 9. janúar 2019 og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru birt ákærða 8. desember 2018 var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið þau brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákærði er [...] og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 1995. Við ákvörðun refsingar í máli þessu hefur eftirfarandi áhrif;  Með dómi 29. september 2009 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, akstur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Ákærði var dæmdur í 15 daga fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð með dómi 8. mars 2010 fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærði framdi brot sín fyrir uppkvaðningu áðurnefnds dóms frá 29. september 2009 og var því gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með dómi 21. febrúar 2012 var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti og hraðakstur. Ákærði var dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir sviptingarakstur með dómi 11. október 2013. Með dómi 17. júlí 2017 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Ákærði framdi brot sín fyrir afgreiðslu sektargerðar sem hann gekkst undir 3. mars 2017 vegna fíkniefnalagabrots og var ákærða því gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi 12. september 2018 var ákærði dæmdur í 165 daga fangelsi og var sviptur ökurétti í tólf mánuði fyrir að hafa tvívegis á árinu 2017 ekið sviptur ökurétti, þar af í annað skiptið jafnframt undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en í sama máli var ákærði jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Ákærði framdi fyrra brot sitt 15. janúar 2017 og var honum því gerður hegningarauki hvað það brot varðaði samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga.

Brot þau sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í máli þessu voru framin fyrir uppkvaðningu áðurnefnds dóms frá 12. september 2018 og verður ákærða því gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Að framangreindum sakaferli og brotum ákærða virtum, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.

Með vísan til framangreinds ber, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti í sex mánuði frá 12. september 2019 að telja en þann dag rennur ökuréttarsvipting ákærða samkvæmt áðurnefndum dómi frá 12. september 2018 sitt skeið á enda.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, sem samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda um slíkan kostnað og með stoð í öðrum framlögðum gögnum, nemur samtals 135.355 krónum.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Guðmundur Kristján Kristjónsson, sæti fangelsi í 60 daga.

            Ákærði er sviptur ökurétti í sex mánuði frá 12. september 2019.

            Ákærði greiði 135.355 krónur í sakarkostnað.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir