• Lykilorð:
  • Svipting ökuréttar
  • Skjalafals
  • Umferðarlagabrot

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness mánudaginn 10. desember 2018 í máli nr. S-389/2018:

 

Ákæruvaldið

(Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Jakub Pojawis

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 12. nóvember 2018, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum á hendur Jakub Pojawis, kt. 000000-0000, [...]:

,,Fyrir eftirtalin hegningar og umferðarlagabrot framin árin 2017 og 2018:

1.      Umferðarlagabrot, með því að hafa, þriðjudaginn 1. ágúst 2017, ekið [...] um Reykjanesbraut vestan við Kúagerði með 150 km/klst., á vegakafla þar sem leyfður hámarkshraði var 90 km/klst.

2.      Umferðarlagabrot, með því að hafa, þriðjudaginn 7. nóvember 2017, ekið bifreiðinni [...], óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 265 ng/ml) norður Duusgötu í Keflavík uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.  

3.      Umferðar- og hegningarlagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 17. desember 2017,  í blekkingarskyni sett skráningarnúmerið [...] á Nissan Terrano II bifreið sem bera átti skráningarnúmerið [...], og ekið henni þannig ótryggðri á röngum skráningarnúmeri, óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 360 ng/ml.) norður Njarðarbraut í Njarðvík uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

4.      Umferðarlagabrot, með því að hafa, sunnudaginn 4. mars 2018, ekið bifreiðinni [...] sem var ótryggð, óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 555 ng/ml.) um Njarðarbraut í Njarðvík uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar. 

5.      Umferðarlagabrot, með því að hafa, fimmtudaginn 19. apríl 2018, ekið bifreiðinni [...], óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 555 ng/ml) um Njarðarbraut í Njarðvík uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.    

6.      Umferðarlagabrot, með því að hafa, laugardaginn 28. apríl 2018, ekið bifreiðinni [...], óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 760 ng/ml) um Hafnargötu og Vesturgötu í Keflavík uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar móts við Vesturgötu 8.

       Telst brot í ákærulið 1 varða við 2. mgr. 37. gr., brot í ákæruliðum 2-6 við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a, brot í ákærulið 3 við 1. mgr. 63. gr., brot í ákæruliðum 3 og 4 við 93. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.  Þá telst brot í ákærulið 3 auk þess varða við 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

       Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr.  umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.“

 

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins 12. nóvember 2018 og boðaði ekki forföll en í fyrirkalli sem var ásamt ákæru löglega birt 30. október 2018 var tekið fram að yrði ekki sótt þing af hans hálfu mætti hann búast við því að fjarvist hans yrði metin til jafns við það að hann viðurkenndi að hafa framið þau brot sem hann væri ákærður fyrir og að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti telur dómurinn þannig sannað að ákærði hafi framið þau brot sem ákært er út af og eru brot hans réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.

Ákærði er fæddur árið 1995 og hefur samkvæmt framlögðu sakavottorði ekki áður sætt refsingu. Samkvæmt því og að brotum ákærða virtum þykir refsing ákærða hæfi­lega ákveðin fangelsi í 30 daga, en þá refsingu þykir mega binda skilorði á þann veg sem í dómsorði greinir.

Með vísan til 4. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, skal ákærði nú jafnframt greiða 850.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 36 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Með vísan til framangreinds ber í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti í þrjú ár frá birtingu dóms þess að telja.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða allan sakarkostnað málsins sem, samkvæmt framlögðu yfirliti um slíkan kostnað og með stoð í öðrum gögnum málsins, nemur samtals 454.349 krónum.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Jakub Pojawis, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu þeirrar refsingar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði greiði jafnframt 850.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 36 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa.

Ákærði er sviptur ökurétti í þrjú ár frá birtingu þessa dóms að telja.

            Ákærði greiði 454.349 krónur í sakarkostnað.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir