• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Upptaka

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness miðvikudaginn 3. október 2018 í máli nr. S-398/2018:

Ákæruvaldið

(Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Robert Jackowski

(Snorri Sturluson lögmaður)

 

Mál þetta, sem dómtekið var 5. september 2018, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara 7. ágúst 2018 á hendur ákærða, Robert Jackowski, fæddum […], pólskum ríkisborgara;

„fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa að kvöldi föstudagsins 18. maí 2018, staðið að innflutningi á 920 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa sem hafði 30% styrkleika, ætlaðan til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti ákærði til Íslands, sem farþegi með flugi VE-61539 frá Varsjá í Póllandi til Keflavíkurflugvallar, en tollverðir fundu efnin falin í flösku í farangri ákærða við komu hans til Keflavíkurflugvallar.

Telst þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 64/1974, sbr. 1. gr. laga nr. 32/2001.

Þess er krafist að ákærði verið dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá er þess er krafist að framangreind fíkniefni, 920 ml af vökva sem innihélt amfetamínbasa, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 19. maí 2018 verði dregið frá þeirri refsingu sem ákveðin verði að fullri dagatölu. Þá krefst skipaður verjandi ákærða þóknunar, bæði sér til handa og til handa verjanda ákærða á fyrri stigum málsins

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Málið var tekið til dóms við þingfestingu þess 5. september sl. án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Ákærði játaði brot sitt samkvæmt ákæru héraðssaksóknara við þingfestingu máls þessa 5. september sl. Játning ákærða samrýmist gögnum málsins. Brot hans telst því sannað og er það réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærða til málsbóta horfir játning hans. Jafnframt þykir verða að leggja til grundvallar að ákærði hafi einungis komið að flutningi amfetamínbasans hingað til lands. Hann hafi hvorki komið að skipulagningu né fjármögnun innflutningsins. Við ákvörðun refsingar verður einnig að taka mið af magni amfetamínbasa í þeim vökva sem ákærði flutti til landsins, en vökvinn reyndist vera 30% amfetamínbasi. Samkvæmt matsgerð Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, dagsettri 26. júní 2018, hefði mátt framleiða ríflega tvö kíló af amfetamíni í 11% styrk úr vökvanum, en sá styrkleiki er nærri þekktum neyslustyrk efnisins. Að öllu þessu gættu þykir refsing ákærða réttilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 19. maí 2018 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerðir upptækir 920 ml af vökva sem inniheldur amfetamínbasa og ákærði var með í vörslum sínum við komuna til landsins 18. maí sl.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða útlagðan sakakostnað samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti héraðssaksóknara, 94.606 krónur. Ákærði greiði einnig þóknun verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, sem eftir umfangi málsins þykir með hliðsjón af fyrirliggjandi tímaskýrslu hæfilega ákveðin svo sem í dómsorði greinir. Þá verður ákærða enn fremur gert að greiða þóknun verjanda síns á fyrri stigum málsins, Daníels Reynissonar lögmanns, sem hæfilega þykir ákveðin með hliðsjón af fyrirliggjandi tímaskýrslu svo sem í dómsorði greinir. Ákærði greiði jafnframt útlagðan ferðakostnað lögmannsins, samtals 55.660 krónur.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Robert Jackowski, fæddur […], sæti fangelsi í 15 mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 19. maí 2018 að fullri dagatölu.

Ákærði sæti upptöku á 920 ml af vökva sem inniheldur amfetamínbasa.

Ákærði greiði 1.098.866 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 505.920 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og þóknun verjanda síns á fyrri stigum málsins, Daníels Reynissonar lögmanns, 442.680 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum og útlagðan ferðakostnað lögmannsins, 55.660 krónur.

Kristinn Halldórsson