- Ávana- og fíkniefni
- Játningarmál
- Umferðarlagabrot
- Vopnalagabrot
- Ökuréttarsvipting
D
Ó M U R
Héraðsdóms Reykjaness þriðjudaginn 22. janúar
2019 í máli nr. S-534/2018:
Ákæruvaldið
(Einar E. Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hjalta Rúrikssyni
Mál
þetta, sem var tekið til dóms 9. janúar 2019, höfðaði lögreglustjórinn á
höfuðborgarsvæðinu með ákæru 23. október 2018 á hendur Hjalta Rúrikssyni, kt. 000000-0000,
[...];
,,fyrir
umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins
30. júlí 2017 ekið bifreiðinni [...], undir áhrifum ávana- og fíkniefna, óhæfur til að
stjórna ökutæki örugglega (í blóði mældist amfetamín 205 ng/ml, metamfetamín 75
ng/ml og tetrahýdrókannabínól 6,4 ng/ml) og sviptur ökurétti, suður
Reykjanesbraut í Hafnarfirði við Einiberg, þar sem lögregla stöðvaði
aksturinn, jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum 0,86 g af tóbaksblönduðu
kannabisefni, sem lögregla fann í bifreiðinni, og einnig haft í vörslum sínum í
bifreiðinni eftirfarandi vopn; hnúajárn, hníf (lengri en 12 sm), teygjubyssu
ásamt skoti og pílum.
Telst
þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45.
gr. a, og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/ 1987,
sbr. 5. gr. laga nr. 66/ 2006, 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og
fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2.
gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur
eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og við a.-, c.- og f- lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 36. vopnalaga nr.
16/1998.
Þess er
krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, greiðslu alls sakarkostnaðar og
til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25.
gr. laga nr. 44, 1993 og 18. gr. laga nr. 66, 2006 og jafnframt að ofangreint fíkniefni 0,86 tóbaksblandað kannabisefni,
sem hald var lagt á verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/
1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/ 2001 og að ofangreind vopn, hnúajárn, hnífur, teygjubyssu
ásamt skoti og pílum verði gerð upptæk samkvæmt 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr.
16/1998.“
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau
brot sem honum eru gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr.
laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari
sönnunarfærslu eftir að sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá
sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi
við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þau brot sem honum eru
gefin að sök og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur
því unnið sér til refsingar.
Ákærði er fæddur [...] og á samkvæmt framlögðu
sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2010. Ákærði gekkst
undir sektargerð lögreglustjóra 27. apríl 2010 vegna fíkniefnalagabrots og
aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna þess efnis að ákærði samþykkti
greiðslu sektar að fjárhæð 104.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í 4
mánuði. Með sektargerð lögreglustjóra 19. maí 2011 samþykkti ákærði greiðslu
sektar að fjárhæð 200.000 krónur og að sæta sviptingu ökuréttar í 24 mánuði
fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærði var dæmdur í 30 daga
fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt með dómi 12. desember 2011 fyrir að aka
bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna 26. maí 2011. Ákærði
samþykkti greiðslu 30.000 króna sektar fyrir fíkniefnalagabrot með sektargerð
lögreglustjóra 4. september 2013. Með dómi 30. október 2013 var ákærði dæmdur í
fangelsi í fjóra mánuði og ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð fyrir að
hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og
fíkniefna. Með sektargerð lögreglustjóra 11. júlí 2017 samþykkti ákærði
greiðslu sektar að fjárhæð 60.000 krónur fyrir fíkniefnalagabrot. Ákærði var dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir
sviptingarakstur með dómi 8. september 2015. Með dómi 12. janúar 2017 var
ákærði dæmdur í 90 daga fangelsi fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur
ökurétti.
Að framangreindum sakaferli og að brotum ákærða virtum,
sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing hans hæfilega
ákveðin fangelsi í 5 mánuði.
Með vísan til 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga er ævilöng
ökuréttarsvipting ákærða áréttuð.
Með
vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í
ákæru verða gerð upptæk 0,86 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, hnúajárn, hnífur
og teygjubyssa ásamt skoti og pílum.
Samkvæmt
1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til
greiðslu sakarkostnaðar sem, samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda um slíkan
kostnað og með stoð í öðrum framlögðum gögnum, nemur samtals 134.355 krónum.
Margrét
Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærði,
Hjalti Rúriksson, sæti fangelsi í 5 mánuði.
Ákærði
er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði
sæti upptöku á 0,86 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, hnúajárni, hníf og
teygjubyssu ásamt skoti og pílum.
Ákærði
greiði 135.355 krónur í sakarkostnað.
Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir