• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjaness föstudaginn 25. janúar 2019 í máli nr. S-488/2018:

 

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Rafal Sobczak

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

 

            Mál þetta, sem var tekið til dóms 11. janúar 2019, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 1. október 2018 á hendur Rafal Sobczak, kt. 000000-0000, [...]; ,,fyrir eftirtalin brot á umferðarlögum:

I.

          Með því að hafa, föstudaginn 22. júní 2018 ekið bifreiðinni [...] á Kirkjuvegi og inn á Vesturbraut, Reykjanesbæ, án ökuréttinda.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

II.

          Með því að hafa, föstudaginn 17. ágúst 2018 ekið bifreiðinni [...] á Reykjanesbraut við Flugvallarveg, Reykjanesbæ, undir  áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (50 ng/ml MDMA og 30 ng/ml metýlfenidat í blóði) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega.

          Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

          Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er jafnframt krafist að ákærða verði gert að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr.  umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993 og lög nr. 66/2006.“

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi ákærða kröfu um hæfilega þóknun sér til handa.

 

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þau brot sem honum eru gefin að sök og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.

Ákærði er fæddur 1987 og á samkvæmt framlögðu sakavottorði að baki sakaferil sem nær aftur til ársins 2010. Við ákvörðun refsingar í máli þessu hefur eftirfarandi áhrif; Með dómi 1. júlí 2011 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnað samkvæmt 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en með sama dómi var ákærði sakfelldur fyrir hraðakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og var sviptur ökurétti í tvö ár. Í dómnum greinir frá því að ákærði hafi gengist undir sektargerð lögreglustjóra 15. ágúst 2007 vegna fíkniefnalagabrots og brots gegn 45. gr. umferðarlaga og samþykkt að sæta átta mánaða ökuréttarsviptingu. Ákærði gekkst undir sektargerð lögreglustjóra 5. september 2013 vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna, aksturs sviptur ökurétti og hraðakstur 2. september 2012 þess efnis að ákærði samþykkti greiðslu sektar að fjárhæð 250.000 krónur og að sæta tveggja ára ökuréttarsviptingu.

            Samkvæmt framangreindu um sakaferil ákærða og að brotum hans virtum, sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing hans samkvæmt dómvenju réttilega ákveðin fangelsi í 60 daga.

Með vísan til framangreinds ber, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða sakarkostnað málsins sem, samkvæmt framlögðu yfirliti sækjanda um slíkan kostnað og með stoð í öðrum gögnum málsins, nemur samtals 91.960 krónum. Þá greiði ákærði þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 105.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

 

DÓMSORÐ:

            Ákærði, Rafal Sobczak, sæti fangelsi í 60 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði 197.360 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 105.400 krónur.

 

Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir