- Akstur án ökuréttar
- Ávana- og fíkniefni
- Ítrekun
- Játningarmál
- Fangelsi
- Umferðarlagabrot
- Upptaka
- Vörslur
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 5. desember 2018 í máli nr. S-654/2018:
Ákæruvaldið
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Antoni Orra Kvaran
Mál þetta, sem dómtekið var 28. nóvember sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 6. nóvember 2018, á hendur Antoni Orra Kvaran, kt. [...],[...], Reykjavík, fyrir eftirtalin umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa:
1. Fimmtudaginn 31. ágúst 2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana-
og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 70 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 6,3
ng/ml) um Bríetartún í Reykjavík, við lögreglustöðina, þar sem lögregla
stöðvaði aksturinn og að hafa haft í vörslum sínum 2,24 g af maríjúana, sem
ákærði framvísaði við afskipti lögreglu.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45.
gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1.
mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um
ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög
nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana-
og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr.
848/2002.
2. Föstudaginn 15. desember 2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana-
og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 75 ng/ml, MDMA 320 ng/ml og
tetrahýdrókannabínól 9,2 ng/ml) norður Reykjanesbraut í Garðabæ, sunnan við
Vífilsstaðaveg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og að hafa haft í vörslum
sínum 0,96 g af amfetamíni, 0,11 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,67 g af
maríjúana, sem lögreglumenn fundu við leit í bifreiðinni [...] og við öryggisleit á ákærða.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45.
gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1.
mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um
ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um
ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð
nr. 848/2002.
3. Laugardaginn 3. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa
ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 170 ng/ml og
tetrahýdrókannabínól 3,8 ng/ml) norður Víkurveg í Reykjavík, að Borgavegi, þar
sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45.
gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1.
mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
4. Fimmtudaginn 6. september 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr.
1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði
dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu
ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr.
44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku á 0,96 g af
amfetamíni, 2,91 g af maríjúana og 0,11 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr.
laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr.
laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari
sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig
um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað
er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá
háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til
refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hans,
dagsettu 1. nóvember 2018, á ákærði sakaferil að baki sem nær aftur til ársins
2009. Með sátt lögreglustjórans á Suðurnesjum 7. júlí 2011 var ákærða gert að
gangast undir greiðslu sektar vegna ölvunaraksturs. Þá var ákærða einnig gert
að greiða sekt með dómi Héraðsdóms Suðurlands 27. júní 2013 fyrir akstur undir
áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærði var jafnframt dæmdur í 4 mánaða fangelsi
með dómi Héraðsdóms Reykjaness, dagsettum 4. júlí 2014 fyrir akstur undir
áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Þá gekkst ákærði að
endingu undir sektargreiðslu hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
fyrir akstur sviptur ökurétti með sátt dagsettri 27. október 2017. Er því hér við
það miðað að ákærði gerist nú sekur um akstur undir áhrifum áfengis- og/eða
ávana- og fíkniefna í fjórða skipti innan ítrekunartíma, sbr. 3. mgr. 71. gr.
almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og akstur sviptur ökurétti í þriðja sinn.
Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni máls
þessa, sem og dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir
refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 5 mánuði. Ekki þykja efni til að
skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng
svipting ökuréttar ákærða frá birtingu dóms þessa að telja.
Með
vísan til lagaákvæða í ákæru er gert upptækt til 0,96 g af amfetamíni,
2,91 g af maríjúana og 0,11 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn
málsins.
Ákærði greiði 440.893 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín
Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.
Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara,
kveður upp dóminn.
D Ó
M S O R Ð:
Ákærði, Anton Orri Kvaran, sæti fangelsi í 5 mánuði.
Áréttuð er ævilöng svipting
ökuréttar ákærða frá birtingu dóms þessa að telja.
Upptækt er gert til ríkissjóðs 0,96
g af amfetamíni, 2,91 g af maríjúana og 0,11 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Ákærði greiði 440.893 krónur í annan
sakarkostnað.
Þórhildur Líndal