- Akstur án ökuréttar
- Ávana- og fíkniefni
- Ítrekun
- Játningarmál
- Fangelsi
- Umferðarlagabrot
- Vörslur
- Ölvunarakstur
D Ó M U R
Héraðsdóms Reykjavíkur 13. febrúar 2019 í máli nr. S-848/2018:
Ákæruvaldið
(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Árna Hlöðveri Sigurgeirssyni
(Bjarni Þór Sigurbjörnsson lögmaður)
Mál þetta, sem dómtekið var 6. febrúar
sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
18. desember 2018, á hendur Árna Hlöðveri Sigurgeirssyni, kt. [...],[...],
Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:
I. Umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 26. ágúst
2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og
óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og
slævandi lyfja (í blóði mældist vínandamagn 1,21‰, tetrahýdrókannabínól 8,1
ng/ml og lórazepam 45 ng/ml) í grasbala við Reynisvatnsveg í Reykjavík.
II. Umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn
29. desember 2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og
óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði
mældist vínandamagn 2,54‰ og tetrahýdrókannabínól 12 ng/ml) um Þórðarsveig í
Reykjavík uns hann stöðvaði aksturinn við Þórðarsveig 1, þar sem lögregla hafði
afskipti af ákærða og fyrir að hafa haft í vörslum sínum 0,80 g af maríjúana
sem lögregla fann við leit á ákærða.
III. Umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 23. júlí 2018
ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og
óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og
slævandi lyfja (í blóði mældist vínandamagn 2,72‰, tetrahýdrókannabínól 3,4
ng/ml, díazepam 53 ng/ml og nordíazepam 125 ng/ml) um Suðurfell að Norðurfelli,
Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn við gatnamót Norðurfells og
Æsufells.
Teljast öll brotin varða við 1.,
sbr. 3. mgr. 45. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., en brot í
I. og III. lið auk þess við 1., sbr. 2. mgr. 44. gr., allt sbr. 1. mgr. 100.
gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þá telst brot í II. lið einnig varða við 2. gr.,
sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr.
13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um
ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð
nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði
dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu
ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr.
44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Krafist er upptöku á 0,80 g af maríjúana,
sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14.
gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Verjandi ákærða krefst vægustu
refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt
164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án
frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn
kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot
sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur
um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til
refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í [...].
Ákærði er í máli þessu sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir að aka í
þrjú skipti undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti, þar
af í tvö skipti einnig undir áhrifum slævandi lyfja. Samkvæmt framlögðu
sakavottorði, dagsettu 12. desember 2018, á ákærði allnokkurn sakaferil að baki
sem nær aftur til ársins 1997 og hefur hann margítrekað verið fundinn sekur um
sams konar brot gegn umferðarlögum og hann er sakfelldur fyrir í þessu máli. Samkvæmt
framangreindu sakavottorði ákærða hefur hann til að mynda 10 sinnum verið dæmdur
til fangelsisrefsingar fyrir slík brot síðan árið 2005, nú síðast með dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur hinn 20. febrúar 2017 er hann var dæmdur til að sæta fangelsi í 18
mánuði.
Ákærði hefur svo sem fyrr greinir
gengist greiðlega við brotum sínum og
verður það virt honum til refsilækkunar. Með
hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls, sem og dómvenju og 77. gr.
almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin
fangelsi í 21 mánuð. Að virtum sakaferli ákærða þykja ekki efni til að
skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er
áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða frá birtingu dóms þessa að telja. Þá
er jafnframt með vísan til lagaákvæða í ákæru gert upptækt til ríkissjóðs 0,80 g af maríjúana sem lögregla lagði hald á
við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun
skipaðs verjanda síns, Bjarna Þórs Sigurbjörnssonar lögmanns, 212.000 krónur,
að meðtöldum virðisaukaskatti, og 453.703 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur
Gunnarsson saksóknarfulltrúi.
Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður
dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Árni Hlöðver Sigurgeirsson,
sæti fangelsi í 21 mánuð.
Áréttuð er ævilöng svipting
ökuréttar ákærða frá birtingu dómsins að telja.
Upptækt er gert til ríkissjóðs 0,80
g af maríjúana.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun
skipaðs verjanda síns, Bjarna Þórs Sigurbjörnssonar lögmanns, 212.000 krónur og
456.703 krónur í annan sakarkostnað.
Þórhildur Líndal