• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Upptaka
  • Ökuréttarsvipting

 

D Ó M U R

            Héraðsdóms Reykjavíkur 5. desember 2018 í máli nr. S-799/2018:

Ákæruvaldið

(Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Jóni Þór Hróarssyni

                                                (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglu­stjóranum á höfuðborgarsvæðinu 20. nóvember 2018, á hendur Jóni Þóri Hróarssyni, kt. [...],[...], Reykjavík fyrir eftirtalin brot:

 

I.

Umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa:

1.                  Sunnudaginn 11. desember 2016 ekið bifreiðinni [...]  sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist vínandi 0,66 ‰, kókaín 160 ng/ml og tetrahýdókannabínól 18 ng/ml) við gatnamót Njarðargötu og [...] í Reykjavík, þar sem lögregla hafði afskipti af honum, og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögregla fann við leit á ákærða.

Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr.,  1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

 

2.                  Þriðjudaginn 31. júlí 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökuréttindum og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 510 ng/ml), frá bifreiðastæði við [...] í Reykjavík og áleiðis vestur [...], þar sem lögregla hafði afskipti af honum, og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,48 g af kókaíni sem lögregla fann við leit á ákærða.

Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

 

II.

Umferðarlagabrot, með því að hafa:

Laugardaginn 9. desember 2017 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökuréttindum og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 200 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 3,7 ng/ml), vestur Nýbýlaveg í Kópavogi að húsi [...] í sama bæ, þar sem lögregla hafði afskipti af honum.)

Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Þá er gerð krafa um að framangreind fíkniefni, 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,48 g af kókaíni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Ákærði er fæddur í [...]. Í samræmi við framlagt sakavottorð, dagsett 14. nóvember 2018, er við ákvörðun refsingar miðað við að ákærði sé nú í sjötta sinn fundinn sekur um að aka undir áhrifum áfengis eða óhæfur til að stjórna bifreið örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Þá er við það miðað að ákærði sé nú í fjórða sinn fundinn sekur um að aka sviptur ökurétti. Með hliðsjón af dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð, frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er gert upptækt til ríkisjóðs 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,48 g af kókaíni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Freys Sigurðssonar, 210.800 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 145.853 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness aðstoðarsaksóknari.

Benedikt Smári Skúlason, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Jón Þór Hróarsson, sæti fangelsi í 10 mánuði.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða frá uppkvaðningu dómsins að telja.

Upptækt er gert til ríkissjóðs 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,48 g af kókaíni.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Freys Sigurðssonar, 210.800 krónur og 400.261 krónur í annan sakarkostnað.

 

Benedikt Smári Skúlason