• Lykilorð:
  • Akstur án ökuréttar
  • Ávana- og fíkniefni
  • Ítrekun
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 10. apríl 2019 í máli nr. S-159/2019:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sigurði Guðnasyni

(Guðbjarni Eggertsson lögmaður)

            Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. febrúar 2019, á hendur Sigurði Guðnasyni, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 14. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa endurnýjað ökuskírteini og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 0,6 ng/ml og í þvagi mældist tetrahýdrókannabínólsýra) um Háholt í Mosfellsbæ, við N1, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

            Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., og 1. mgr. 48. gr. og, allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

            Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.

            Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

            Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

            Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

            Ákærði er fæddur í október 1990 og er í máli þessu sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna, án þess að hafa endurnýjað ökuskírteini sitt. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 20. febrúar 2019, á ákærði nokkurn sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2009. Meðal annars gekkst ákærði undir greiðslu sektar hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hinn 28. janúar 2010 fyrir ölvunarakstur. Þá var ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og fyrir að aka undir áhrifum áfengis með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 3. apríl 2014 en ekki gerð sérstök refsing. Sakavottorð ákærða hefur að öðru leyti ekki þýðingu í málinu. Við ákvörðun refsingar hér verður þannig við það miðað að ákærði gerist nú sekur um að að aka undir áhrifum áfengis og/eða ávana- og fíkniefna í þriðja sinn.

            Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni málsins og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

            Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

            Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðbjarna Eggertssonar lögmanns, 105.400 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 76.961 krónu í annan sakarkostnað.

            Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari.

            Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

 

                                                   D Ó M S O R Ð:       

            Ákærði, Sigurður Guðnason, sæti fangelsi í 30 daga.

            Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

            Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðbjarna Eggertssonar lögmanns, 105.400 krónur og 76.961 krónu í annan sakarkostnað.

 

                                                   Þórhildur Líndal