• Lykilorð:
  • Ítrekun
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Umferðarlagabrot

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 21. febrúar 2018 í máli nr. S-14/2018:

Ákæruvaldið

(Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Mariusz Jan Troska

(Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

 

            Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með tveimur ákærum útgefnum af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Fyrri ákæran er gefin út 9. janúar 2018, á hendur Mariusz Jan Troska, kt. 000000-0000, Víðimel 32, Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa sunnudaginn 2. júlí 2017 ekið bifreiðinni UE-R35 sviptur ökurétti um Hringbraut við BSÍ uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

 

Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Síðari ákæran er gefin út á hendur ákærða 6. febrúar 2018, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa föstudaginn 5. janúar 2018 ekið bifreiðinni RX-819 sviptur ökurétti um Helluhraun uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar við hús númar 4.

 

Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

       Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

 

       Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

       Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

 

       Ákærði er fæddur í ágúst 1978. Í samræmi við framlagt sakavottorð, dagsettu 9. janúar 2018, er við ákvörðun refsingar miðað við að ákærði sé nú í sjötta sinn fundinn sekur um að aka sviptur ökurétti.

       Með hliðsjón af framangreindu og dómaframkvæmd þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði.

       Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 168.640 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

       Engan annan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

       Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari.

       Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

                                                D Ó M S O R Ð:       

       Ákærði, Mariusz Jan Troska, sæti fangelsi í sex mánuði.

       Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 168.640 krónur.

 

Lilja Rún Sigurðardóttir