• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Umferðarlagabrot

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 20. júní 2018 í máli nr. S-291/2018:

Ákæruvaldið

(Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Marcin Wasilewski

 

 

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 22. maí 2018, á hendur Marcin Wasilewski, kt. 000000-0000, Bríetartúni 12, Reykjavík,      fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa að kvöldi laugardagsins 8. júlí 2017 ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti vestur Bíldshöfða á móts við Brimborg uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

 

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

 

Ákærði er fæddur í september 1993. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 18 maí 2018, var hann dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti með dómi, 16. febrúar 2011. Þá gekkst hann undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt, 13. mars 2013, fyrir hraðakstur og akstur sviptur ökurétti. Loks var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti með dómi, 18. september 2015.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi.

Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

 

                                                   D Ó M S O R Ð:       

 

Ákærði, Marcin Wasilewski, sæti fangelsi í 60 daga.

 

Lilja Rún Sigurðardóttir