• Lykilorð:
  • Akstur án ökuréttar
  • Ávana- og fíkniefni
  • Hegningarauki
  • Ítrekun
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Upptaka
  • Vörslur
  • Ökuréttarsvipting

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 10. apríl 2019 í máli nr. S-128/2019:

Ákæruvaldið

(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Olgu Sadenko

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

            Mál þetta, sem dómtekið var 3. apríl sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 19. febrúar 2019, á hendur Olgu Sadenko, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir eftirtalin umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa:

1.      Mánudaginn 13. febrúar 2017 flutt hingað til lands frá Spáni 0,20 g af maríjúana sem fannst við leit tollvarða í farangri ákærðu.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

2.      Sunnudaginn 5. nóvember 2017 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist metamfetamín 480 ng/ml, MDMA 20 ng/ml og tetrahýdrakannabínól 2,0 ng/ml) um Lönguhlíð í Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn á Háteigsvegi við Reykjahlíð, Reykjavík.

Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

3.      Fimmtudaginn 9. nóvember 2017 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í þvagi mældist metamfetamín og tetrahýdrókannabínólsýra) um Höfðabakka og Bæjarháls í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

4.      Þriðjudaginn 14. nóvember 2017 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti Suðurlandsveg til suðurs við Rauðavatn í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

            Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Þá er krafist upptöku á 0,20 g af maríjúana sem hald var lagt á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

            Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

            Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

            Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

            Ákærða er fædd í apríl 1981. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu    11. febrúar 2019, gekkst ákærða undir viðurlagaákvörðun hjá Héraðsdómi Reykjavíkur 2. nóvember 2016 fyrir að aka undir áhrifum áfengis. Þá gekkst ákærða undir greiðslu sektar með sátt hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hinn 14. febrúar 2017 fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka undir áhrifum áfengis- og ávana- og fíkniefna, svipt ökurétti. Næst var ákærðu gert að greiða sekt með sátt hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir vörslur fíkniefna hinn 27. febrúar 2017. Loks var ákærða dæmd til að greiða 1.000.000 krónur í sekt með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 13. desember 2017, einnig fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna, svipt ökurétti. Umferðarlagabrot ákærðu í hinum síðastgreinda dómi voru að hluta til hegningarauki við sáttina frá 27. febrúar 2017 en að mati dómsins er ljóst að með þeim dómi gerðist ákærða sek um brot gegn 45. gr. og/eða 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 í þriðja sinn.

            Þar sem fyrir liggur í máli þessu að öll brot ákærðu sem hún er sakfelld fyrir í máli þessu voru framin áður en framangreindur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur féll hinn 13. desember 2017, ber því nú að dæma henni hegningarauka er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið, hefði verið dæmt um öll brotin í fyrra málinu, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

 

            Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, sem og dómvenju og ákvæðum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.

            Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærða svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Þá eru einnig með vísan til lagaákvæða í ákæru gerð upptæk til ríkissjóðs 0,20 g af maríjúana sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

            Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 128.480 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 328.752 krónur í annan sakarkostnað.

            Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi.

            Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

                                                   D Ó M S O R Ð:       

            Ákærða, Olga Sadenko, sæti fangelsi í 30 daga.

            Ákærða er svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

            Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,20 g af maríjúana.

            Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 126.480 krónur og 328.752 krónur í annan sakarkostnað.

 

                                                               Þórhildur Líndal