• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Umferðarlagabrot

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 20 júní 2018 í máli nr. S-309/2018:

Ákæruvaldið

(Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Edgaras Marcikonis

 

 

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. maí 2018, á hendur Edgaras Marcikonis, kt. 000000-0000, Krummahólum 6, Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík með því að hafa miðvikudaginn 26. júlí 2017 ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti um Háaleitisbraut við Fellsmúla uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.

 

Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

 

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í september 1992.  Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 28. maí 2018, hefur ákærði alls sjö sinnum verið fundinn sekur um umferðarlagabrot, þar af hefur hann þrisvar sinnum hlotið refsingu fyrir að aka sviptur ökurétti. Ákærði gekkst undir sektarrefsingu með lögreglustjórasáttum, dagsettum 8. júní 2012 og 27. ágúst 2012 fyrir akstur sviptur ökurétti og hraðakstur. Þá var hann dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti, 6. maí 2014. Sakaferill ákærða hefur að öðru leyti ekki þýðingu við ákvörðun refsingar í málinu.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi.

Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

 

                                                D Ó M S O R Ð:       

Ákærði, Edgaras Marcikonis, sæti fangelsi í 60 daga.

 

Lilja Rún Sigurðardóttir