• Lykilorð:
  • Akstur án ökuréttar
  • Ávana- og fíkniefni
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Skilorðsbundnir dómar
  • Umferðarlagabrot
  • Upptaka
  • Vörslur

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 10. apríl 2019 í máli nr. S-74/2019:

Ákæruvaldið

(Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Edvard Aroni A. Larsen

(Ómar R. Valdimarsson lögmaður)

 

            Mál þetta, sem dómtekið var 3. apríl sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. febrúar 2019, á hendur Edvard Aroni A. Larsen, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:

1.      Fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 24. janúar 2018 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 1093,15 g af kannabislaufum, 80,52 g af maríjúana og 63 kannabisplöntur, sem ákærði hafði ræktað um nokkurt skeið fram til þess dags.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

2.      Umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 15. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa öðlast til þess réttindi vestur Hraunberg við Hraunbergssjoppu, Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

            Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á 1093,15 g af kannabislaufum, 80,52 g af maríjúana og 63 kannabisplöntum, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þá er krafist upptöku á átta gróðurhúsalömpum, fjórum gróðurtjöldum, þremur standviftum, þremur viftum með loftsíu og fjórum loftsíum sem lögregla lagði hald á samkvæmt heimild í 7. mgr. 5. gr. sömu laga.

            Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

            Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

            Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

            Ákærði er fæddur í janúar 1991. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 31. janúar 2019, á ákærði sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2007. Ákærði hefur til að mynda gengist undir greiðslu sekta og hlotið nokkra dóma fyrir fíkniefnalagabrot, umferðarlagabrot og ýmis hegningarlagabrot. Síðast var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hinn 16. apríl 2014 fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot. Á hinn bóginn horfir það ákærða til refsimildurnar að hann hefur greiðlega játað brot sín.

            Með hliðsjón af framangreindu og sakarefni þessa máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 5 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

            Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 1093,15 g af kannabislaufum, 80,52 g af maríjúana og 63 kannabisplöntur, auk átta gróðurhúsalampa, fjögurra gróðurtjalda, þriggja standvifta, þriggja vifta með loftsíu og fjögurra loftsía, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

            Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 105.400 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti og 313.108 krónur í annan sakarkostnað.

            Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari.

            Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

 

                                                   D Ó M S O R Ð:       

            Ákærði, Edvard Aron A. Larsen, sæti fangelsi í 5 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

            Upptækt er gert til ríkissjóðs 1093,15 g af kannabislaufum, 80,52 g af maríjúana og 63 kannabisplöntur, átta gróðurhúsalampar, fjögur gróðurtjöld, þrjár standviftur, þrjár viftur með loftsíu og fjórar loftsíur.

            Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 105.400 krónur og 313.108 krónur í annan sakarkostnað.

 

                                                                        Þórhildur Líndal