• Lykilorð:
  • Ítrekun
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Útivist

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands miðvikudaginn 7. febrúar í máli nr. S-245/2017:

  Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Davíð Erni Albertssyni

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 18. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 4. desember sl., á hendur Davíð Erni Albertssyni,  til heimilis að Fjarðarási 4, Reykjavík,

 

fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, skömmu eftir miðnætti miðvikudaginn 27. september 2017, ekið bifreiðinni […] um Suðurlandsveg og inn á Hvammsveg í Sveitarfélaginu Ölfusi, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa amfetamíns, MDMA, kókaíns og metamfetamíns.

 

Telst brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 14. janúar sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Í matsgerð frá rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, sem liggur frammi meðal rannsóknargagna lögreglu, kemur fram að amfetamín, MDMA, metamfetamín og kókaín hafi fundist í þvagi ákærða. Þá hafi í blóði hans mælst amfetamín 100 ng/ml, kókaín 125 ng/ml og MDMA 40 ng/ml, en metamfetamín var ekki í mælanlegu magni í blóði hans. Um málavexti að öðru leyti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði sex sinnum áður sætt refsingu, þar af þrisvar sinnum vegna ölvunaraksturs og/eða aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þann 23. febrúar 2010 var ákærða gerð sekt vegna ölvunaraksturs sem og aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þann 14. nóvember 2011, var ákærða gerð sekt vegna ölvunaraksturs auk annarra umferðarlagabrota. Loks var ákærða  þann 19. október 2016 sl., gert að sæta fangelsi vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að árétta ævilanga sviptingu ökuréttar ákærða.

Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 167.139 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Davíð Örn Albertsson, sæti fangelsi í 60 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 167.139 krónur.

                                                                                    Sólveig Ingadóttir.