• Lykilorð:
  • Ítrekun
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands fimmtudaginn 1. febrúar 2018 í máli nr. S-242/2017:

Ákæruvaldið

(Elimar Hauksson fulltrúi)

gegn

Bjarna Þór Gylfasyni

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 18. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 4. desember sl., á hendur Bjarna Þór Gylfasyni,  til heimilis að Eyravegi 46, Selfossi,   

 

fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 15. október 2017, ekið bifreiðinni […] undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 3,20‰) vestur Suðurlandsveg við Hrísmýri og Árbæjarveg á Selfossi.

 

Telst brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 45. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 með áorðnum breytingum og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti við þingfestingu málsins og lýsti yfir að hann óskaði ekki eftir skipun verjanda. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði þrívegis áður sætt refsingu, í öll skiptin vegna ölvunaraksturs. Þann 24. september 2013 var ákærða gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið vegna ölvunaraksturs. Þá var ákærða þann 19. júlí 2014, gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið vegna ölvunaraksturs. Með vísan til 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, hefur sakaferill ákærða að öðru leyti ekki áhrif við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. og 102. gr., þó einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, ber að svipta ákærðu ökurétti ævilangt. Með vísan til 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 35.498 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Bjarni Þór Gylfason, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 35.498 krónur.

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.