• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Fangelsi
  • Skilorð

D Ó M U R

Héraðsdóms Suðurlands þriðjudaginn 12. febrúar 2019 í máli nr. S-296/2018:

Ákæruvaldið

(Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)

gegn

Viktori Snæ Oliverssyni

(Ólafur Karl Eyjólfsson lögmaður)

 

 

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 31. janúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 7. desember sl., á hendur Viktori Snæ Oliverssyni, Reykjavík,  

 

fyrir fíkniefnalagabrot

með því að hafa, föstudaginn 3. ágúst 2018, í íbúð nr. 102 og meðfylgjandi bílskúr í fjölbýlishúsinu að […] Selfossi, haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, 49,18 g af kókaíni og 169,03 g af maríhúana sem lögregla fann við húsleit.

 

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

 

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá lögreglu nr. 38671) samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

 

Ákærði mætti við þingfestingu málsins ásamt Ólafi Karli Eyjólfssyni lögmanni, sem skipaður var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði þrisvar sinnum áður sætt refsingu. Þann 27. mars 2013 var ákærða gerð sekt vegna umferðarlagabrots og fíkniefnalagabrots. Þann 2. september 2016 var ákærða gerð sekt vegna fíkniefnalagabrots. Loks var ákærða þann 22. nóvember 2016 gerð sekt vegna fíkniefnalagabrots. 

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 90 daga. Að virtum atvikum máls og að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, eru gerð upptæk framangreind fíkniefni líkt og greinir í dómsorði.

Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, með síðari breytingum, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 521.436 kr., auk þóknunar skipaðs verjanda ákærða sem er hæfilega ákveðin 126.480 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts, og ferðakostnað verjanda sem nemur 13.200 kr.

Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

 

D ó m s o r ð :

Ákærði, Viktor Snær Oliversson, sæti fangelsi í 90 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

Gerð eru upptæk, 49,18 g af kókaíni og 169,03 g af marihuana, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 38671.

Ákærði greiði sakarkostnað samtals 661.116 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda, Ólafs Karls Eyjólfssonar lögmanns, 126.480 krónur að teknu tilliti til virðisaukaskatts og ferðakostnað verjanda 13.200 krónur.

 

 

                                                                        Sólveig Ingadóttir.