• Lykilorð:
  • Ávana- og fíkniefni
  • Skilorð
  • Upptaka

D Ó M U R

Héraðsdóms Vestfjarða 25. apríl 2017 í máli nr. S-16/2017:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri)

gegn

Einari Braga Þorkelssyni

 

I

Mál þetta, sem dómtekið var 19. apríl sl., höfðaði lögreglustjórinn á Vestfjörðum með ákæru 1. apríl 2017 á hendur ákærða: „Einari Braga Þorkelssyni, kt. [...], [...], [...], fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 3. mars 2017, haft í vörslum sínum, til söludreifingar, 151,17 grömm maríhú[a]na, 9,65 grömm af kókaíni og 31 ecstasytöflu (MDMA), sem lögreglan fann við leit á ákærða og í bifreiðinni [...], sem ákærði var farþegi í. [...]

Háttsemi ákærða telst varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 1. og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 789/2010 og 513/2012.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.  Þá er krafist upptöku á ofangreindum fíkniefnum, þ.e. 151,17 grömm maríhú[a]na, 9,65 grömm af kókaíni og 31 ecstasytöflu (MDMA), með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, ásamt síðari breytingum.“

 

II

Fyrirkall í máli þessu var gefið út 5. apríl 2017 og birt fyrir ákærða 11. sama mánaðar. Við þingfestingu málsins 19. apríl sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá að kröfu sækjanda dómtekið á grundvelli 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Samkvæmt framansögðu og með vísan til 1. mgr. 161. gr., sbr. 1. mgr. 155. gr. laga nr. 88/2008, verður dómur lagður á málið þrátt fyrir útivist ákærða þar sem framlögð gögn þykja nægileg til sakfellingar. Telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um brot það sem honum er gefið að sök í ákæru og er það þar réttilega heimfært til refsiákvæða.

 

III

Ákærði er fæddur árið [...]. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins gekkst ákærði undir sektargerð 9. desember 2016 vegna brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Með vísan til umfangs og eðlis brots ákærða nú þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 151,17 g af maríhúana, 9,65 g af kókaíni og 31 ecstasytafla (MDMA).

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Dóm þennan kveður upp Sigríður Elsa Kjartansdóttir dómstjóri.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Einar Bragi Þorkelsson, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að tveimur árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 151,17 g af maríhúana, 9,65 g af kókaíni og 31 ecstasytafla (MDMA).

 

Sigríður Elsa Kjartansdóttir