• Lykilorð:
  • Húsbrot
  • Skilorð

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Vestfjarða 10. júlí 2018 í máli nr. S-25/2018:

Ákæruvaldið

(Bryndís Ósk Jónsdóttir fulltrúi)

gegn

Sigurjóni Grétari Einarssyni

 

I

Mál þetta sem dómtekið var 4. júlí sl., var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Vestfjörðum, 6. júní sl. á hendur Sigurjóni Grétari Einarssyni, […], Gerplustræti 6c, Mosfellsbæ,

„ fyrir húsbrot, með því að hafa aðfaranótt fimmtudagsins 29. mars 2018, ruðst í heimildarleysi inn á heimili […], […], að […]“ og hafa þannig brotið gegn 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum. Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

II

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru þann 30. júní sl., ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Að því virtu að ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur með þeim hætti sem áhrif hefur á refsingu í þessu máli, þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

            Engan sakarkostnað leiddi af máli þessu.

            Bergþóra Ingólfsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

 

DÓMSORÐ:

 

Ákærði, Sigurjón Grétar Einarsson sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.

 

                                                                        Bergþóra Ingólfsdóttir