Héraðsdómur Reykjavíkur Dómur þriðjudaginn 12. nóvember 2024 Mál nr. S - 5723 /202 4 : Ákæruvaldið ( Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi ) gegn Einari Braga Þorkelssyni ( Grímur M ár Þórólfsson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir réttargæslumaður) Dómur Mál þetta, sem var dómtekið 4. nóvember 2 024, var höfðað með ákæru lögreglu stjórans á höfuð borgarsvæðinu, dags. 10 . október sama ár, á hendur Einari Braga Þorkelssyni , kt. [...] , [...] , Reykjavík, fyrir eftirtalin fíkniefna - og hegningarlaga brot: I. Skjalafals og fjársvik með því að hafa, miðvikudaginn 22. febrúar 2022, hringt í þjón - ustu ver [...] hf., kt. [...] og pantað án heimildar fjögur símtæki í nafni [...] og síðar um daginn framvísað falsaðri úttektarbeiðni frá [...] í verslun [...] hf., [...] í Reykjavík og þannig blekkt starfsfólk verslunar innar til að afhenda sér tvo iPhone 14 Pro og tvo Samsung S23 Ultra snjallsíma, samtals að söluverðmæti kr. 953.964 . Mál nr. 007 - 20 23 - [...] Telst þetta varða við 248. gr. og 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. II. Brot í nánu sambandi með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 21. janúar 2024, innan - dyra að [...] í Reykjavík, með ofbeldi og hótunum, á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð þáverandi sambúðaraðila síns, A , kt. [...] , með því að slá brotaþola ítrekað í andlit og líkama með krepptum hnefa og með stól, rifið í hár hennar og ýtt brotaþola utan í innanstokksmuni, tekið hana kverkataki og hó tað að berja og stappa á smettinu á brotaþola, allt með þeim afleiðingum að A hlaut undirhúðablæðingar hægra megin á hvirfilsvæði höfuðs og á enni, undirhúða blæð ingu og húðblæðingu í kringum hægra auga og saumað sár á hægra efra augnloki, undir húðablæði ngu og brot á nefbeini, skrámur við 2 hægri augabrún, á nefi, á vinstri kinn og hægra megin á höku, undirslímhúðarblæðingar og grunn sár á innra byrði efri varar, húð blæðingar á hálsi, undirhúðablæðingar og skrámur á báðum handleggjum, skrámur á baki og und irhúðablæðingu á vinstri fótlegg. Mál nr. 007 - 20 24 - [...] Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. III. Fíkniefnalagabrot með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 21. janúar 2024 , að Hverfis - götu [...] í Reykjavík , haft í vörslum sínum 1,03 grömm af kókaíni sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða . M ál nr. 007 - 2024 - [...] Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana - og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana - og fíkniefni og önnur eftirlits skyld efni, með síðari breytingum. Þess er krafist að ákærð i verði dæmd ur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar . Einkaréttarkrafa: Fyrir hönd A , kt. [...] , [...] , Reykja vík , gerir Ólöf Heiða Guðmundsdóttir lögmaður kröfu um að ákærði verði dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð kr. 4.000.000, - auk vaxta [samkvæmt] 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, sbr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, frá 21. janúar 2024 en með dráttarvöxtum [samkvæmt] 9. gr. [ laga nr. 38/2001] , sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi er mánuður er liðinn frá því að bótakrafa er birt til greiðslu dags. Einnig er þess krafist að á kærða verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun. Málið var þingfest 4. nóvember 2024 að undangenginni birtingu á ákæru og einkaréttar - kröfu fyrir ákærða 24. október sama ár . Ákærði játar sök og viðurkennir bótaskyldu en krefst lækkunar á bótafjárhæð. Játningin er studd sakar gögn um og er sann að með henni og öðrum gögn um máls ins að ákærð i er sek ur um þá hátt semi sem honum er gefin að sök 3 og eru brot h ans rétt heimfærð til refsi ákvæða í ák æru. Farið var með mál þetta sam - kvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um með ferð saka mála og var það tekið til dóms án frek - ari sönn unar færs lu þegar sækjanda , verjanda og réttargæslumanni ákærð a hafði verið gef inn kostur á að tjá sig um laga atriði , ákvörðun viður laga og einkaréttarkröfu . Ákæru - valdið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru. Bóta krefjandi, hér eftir nefnd brotaþoli, krefst endanlega miskabóta sem greinir í ákæru, auk hæfilegrar þókn unar til handa skip - uðum réttar gæslu manni. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að fjár hæð bóta kröfu verði lækkuð. Þá krefst hann þess að allur sakarkostnaður greiðist úr ríkis sjóði, þar með talin þóknun skipaðs verjanda, sbr. tímaskýrslu. Ákærði er fæddur í [...] og s amkvæmt sakavottorði, dagsettu 9. október 2024 , á hann nokkurn sakaferil að baki. Ákærði gekkst undir greiðslu sektar og sviptingu öku réttar í 16 mánuði með lögreglustjórasátt 19. ágúst 2016, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Ákærði gekkst undir greiðslu sektar með lög reglu stjórasátt 9. desember 2016 fyrir brot gegn lögum um ávana - og fíkniefni. Með dómi Héraðsdóms Vest fjarða [... ] 2017 var ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skil orðsbundið til tveggja ára, fyrir vörslur fíkniefna. Með dómi Héraðsdóms Vestfjarða [...] 2017 var ákærða gert að sæta sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir sér stak lega hæt tu lega líkamsárás, brot gegn valdstjórninni og brot gegn lögreglu lög um. Var dómur - inn hegningarauki við fyrri dóminn en ekki hróflað við skilorði þess dóms. Með dómi Héraðsdóms Suður lands [...] 2018 var ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur á fíkniefnum. Þá gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með lögreglustjórasátt 23. október 2018, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Með dómi Héraðs dóms Reykjaness [...] 2019 var ákærði dæmdur í 11 mánaða fan gelsi, þar af voru 10 mánuðir skilorðs bundnir til tveggja ár a , fyrir þjófnað og hylmingu . Með dómi Héraðs dóms Suðurlands [...] 2019 var ákærði sakfelldur fyrir minni háttar eignaspjöll en honum var ekki gerð sérstök refsing þar sem um var að ræða hegning arauka við eldri dóm. Með dómi Héraðs dóms Reykjavíkur [...] 2020 var ákærði sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna í sölu - og dreifingarskyni og var hinn eldri skilorðs - dómur frá árinu 2019 dæmdur upp og refsing ákveðin í einu lagi sem 13 mánaða fangelsi, ski lorðsbundið til tveggja ára. Með dómi Héraðs dóms Reykjaness [...] 2022 var ákærði sakfelldur fyrir hótanir og tilraun til fjár kúgunar og var hinn eldri skil orðsdómur frá 2020 dæmdur upp og refsing ákveðin í einu lagi sem fangelsi í 20 mánuði, skilorðsbu ndið til tveggja ára. Með dómi Héraðsdóms Reykja víkur [...] 2023 var ákærða gert að sæta fangelsi í 45 daga og hann sviptur öku rétti ævilangt, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana - og fíkniefna. Með dóm inum var ekki hróflað við hinum eldri sk ilorðsdómi. Með dómi Héraðsdóms Reykja víkur [...] 2024 var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga fyrir þjófnað, vörslur fíkniefna og hraðakstur sviptur ökurétti og undir 4 áhrifum fíkniefna og lyfja, og var refsingin hegningarauki að hluta við hinn eldri d óm, að því er varðar téð brot önnur en umferðarlagabrot, og var ekki hróflað við hinum eldri skilorðsdómi. Brot ákærða samkvæmt I. ákærulið var framið fyrir uppkvaðningu téðra dóma frá [...] 2022, [...] 2023 og [...] 2024. Þá voru brot samkvæmt II. og III. ákærulið framin fyrir uppkvaðningu hins síðastnefnda dóms. Að öðru leyti fólu þau brot í sér rof á almennu skilorði dómsins frá [...] 2 022. Samkvæmt framangreindu ber að ákvarða refsingu ákærða samkvæmt 60. og 78. gr ., sbr. 77. gr., í almennum hegningar lög um. Að því virtu ber nú að dæma refsingu ákærða sem hegningarauka að hluta og með því að taka upp skilorðs - dóminn frá [...] 2022 og ákvarða refs ingu sem eina heild . T öluvert líkams tjón varð af verkn aði samkvæmt II. ákærulið , auk þess sem með honum var brotið gegn mikil vægum verndar hags munum . Jafnframt ber í þessu sam hengi að líta til þess að brotið átti sér stað innan vébanda heimilisins þar sem brotaþoli átti að njóta öryggis . Þá var hættustig og grófleiki v erknaðarins að öðru leyti með meira móti. Horfir allt framan greint til refsi - þyng ingar. Sakaferill ákærða horfir heilt á litið til refsiþyng ingar. Tafir urðu á með ferð máls ins fyrir útgáfu ákæru , að því er varðar I. ákæru lið , og horfir það til mild u nar. Þar sem farið er með málið sem játningarmál eru ekki efni til að beita ítrekunar reglu samkvæmt 255. gr. almennra hegningarlaga, eins og hér stendur á. Ákærði hefur gengist greiðlega við öllum sakargiftum fyrir dómi og viður kennt bóta skyldu og horfi r það hon - um til máls bóta. Einnig ber að líta til þess að ákæru valdið hefur upplýst við rekstur málsins fyrir dómi að ákærði eigi ekki önnur ólokin mál hjá lögreglu og ákæruvaldi. Þá mun hann sjálfur hafa gert reka að því gagnvart ákæru valdinu að ljúka þeim málum sem hér eru til umfjöllunar fyrir dómi. Samkvæmt vottorði félags ráðgjafa og forstöðumanns við SÁÁ, dags. 15. október 2024, var ákærði í áfengis - og vímuefna meðferð, nánar tiltekið frá 6. til 26. mars sama ár á sjúkra húsinu Vogi og frá 26. sam a mánaðar til 7. maí síðastliðinn á með ferðar stöðinni Vík. Þá hefur ákærði, eftir að meðferðinni lauk á Vík, verið í lang tíma meðferð hjá Vin, þar á meðal með fastri bú setu og meðferðardagskrá, eins og nánar er rakið í vott orðinu. Að óbreyttu er miðað við að sú meðferð vari í 18 24 mánuði frá fyrr greind um upphafs tíma að telja. Þessu til við bótar liggur fyrir, samkvæmt vottorði félags ráðgjafa við velferðar svið Reykja víkur borgar, dags. 14. október 2024, að ákærði hefur frá lokum ágúst mánaðar síðast liðins jafnframt tekið þátt í náms - og starfsendurhæfingu innan undir bún ings hóps Grettistaks með góðum árangri. Þá er gert ráð fyrir áframhaldandi þátttöku ákærða til lengri tíma í hinu sama, eins og nánar er rakið í vottorðinu. Verður að taka tillit til fyrrgreindra aðstæðna ákærða, til refsimildunar, eins og hér stendur á. 5 Að öllu framan greindu virtu, og með vísan til b - liðar 1. mgr. 57. gr. og 1., 2., 3., 5. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. í almennum hegn ingar lögum, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fang elsi í tvö ár en fresta skal fullnustu refsingarinnar í þrjú ár frá birtingu dómsins að telja. Skal sú frestun bundin almennu skil orði samkvæmt 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga og jafnframt skil yrðum 1. og 3. tl. 3. mg r. sömu lagagreinar um að ákærði sæti á skilorðs tím anum umsjón tilsjónarmanns og að hann neyti ekki á skilorðstímanum áfengis eða ávana - og fíkniefna. Með þeirri háttsemi sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir samkvæmt II. ákærulið hefur hann með s ak næm um og ólögmætum hætti bakað sér skaða bóta ábyrgð. Skilyrði um orsaka tengsl og senni lega afleiðingu eru fyrir hendi. Þá eru uppfyllt skilyrði a - liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabóta laga nr. 50/1993, sbr. 13. gr. laga nr. 36/1999. Við ákvörðun um fjárhæ ð miska bóta verður litið til tjóns og gróf leika hátt sem innar, eins og áður er rakið. Að þ essu virtu, og með hliðsjón af eðli brots og dóm venju, þykir fjárhæð miska bóta hæfi lega ákveðin 1.200.000 krónur. Einka réttar krafan var ekki kynnt fyrir á kærða á rann - sóknar stigi. Að því virtu, og með vísan til 2. málsl. 9. gr. laga nr. 38/2001, verður mið að við mánuð frá birtingu ákæru og greinar gerðar einka réttar kröfu sem upphafstíma dráttar - vaxta, sbr. það sem áður greinir um birt ingardag. Þá leiði r af niðurstöðu um þóknun til skipaðs réttargæslumanns, sbr. nánar síðar, að málskostnaður vegna einkaréttarkröfunnar verður ekki dæmdur undir þessum lið málsins. Samkvæmt framangreindu v erður ákærða gert að greiða brotaþola miskabætur með vöxtum og drátta rvöxtum, eins og nánar greinir í dóms orði. Vegna máls úrslita ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar, sbr. 233., 234. og 235. gr. laga nr. 88/2008. Til þess kostn aðar telst þóknun skip aðs verjanda hans, Gríms M ás Þór ólfs sonar lögmanns, vegna vinnu á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem ræðst af tíma skýrslu, 274.040 krónur , að með töld um virðis aukaskatti. Jafnframt fellur undir sakar kostnað þóknun fyrri tilnefnds verjanda ákærða á rannsóknarstigi, Guðmundar St. Ragnars sonar lögman ns, sem þykir út frá eðli og umfangi máls hæfilega ákveðin 300.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Einnig fellur hér undir þóknun skipaðs réttar - gæslu manns brotaþola, Ólafar Heiðu Guðmundsdóttur lögmanns, vegna vinnu á rann - sóknar stigi og fyrir dómi, sem ræðst af tímaskýrslu, 717.340 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Að auki falla undir sakarkostnað útgjöld samkvæmt yfirliti ákæru - valdsins, 237.544 krónur. Verður ákærða gert að greiða allan framangreindan sakar - kostnað, eins og nánar gre inir í dómsorði. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi. 6 D aði Kristjáns son héraðsdómari kveður upp dóm þennan. D ó m s o r ð : Ákærði, Einar Bragi Þorkelsson, sæti fangelsi í tvö ár en fresta skal fullnustu refsingar - innar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá birtingu dómsins að telja, haldi ákærði almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Þá er frestun á fullnustu refsingar jafnframt bundin þ eim skilyrð um 1. og 3. tl. 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga að ákærð i sæti á skilorðs tím anum umsjón tilsjónarmanns og ákærði neyti ekki á sama tímabili áfengis né ávana - og fíkniefna. Ákærði greiði A 1.200.000 krónur í miskabætur með vöxtum sam kvæm t 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 21. janúar 2024 til 24. nóvember sama ár, en með dráttar vöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga, frá þeim degi til greiðslu - dags . Ákærði greiði samtals 1. 528.924 krónur í sakarkost nað til ríkissjóðs og er þar innifalin þóknun skipaðs verjanda hans, Gríms M ás Þórólfssonar lögmanns, 274.040 krónur , þóknun fyrri tilnefnds verjanda á rannsóknarstigi, Guðmundar St. Ragnarssonar lög - manns, 300.000 krónur, og þóknun skipaðs réttargæslumann s brotaþola, Ólafar Heiðu Guð mundsdóttur lögmanns, 717.340 krónur . Daði Kristjánsson