Um dómstólinn

Héraðsdómur Norðurlands eystra, Hafnarstræti 107, 4. hæð, Akureyri. Sími:432-5060
 

Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 16.00 alla virka daga.

Dómstjóri er Arnbjörg Sigurðardóttir

Þingstaður: Héraðsdómur Norðurlands eystra, dómsal B, Hafnarstræti 107, 4. hæð, Akureyri.

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Regluleg dómþing í einkamálum eru haldin á fimmtudögum kl.13.30.

Héraðsdómur Norðurlands eystra starfar samkvæmt lögum nr. 50/2016.

Umdæmi Héraðsdóms Norðurlands eystra er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Akureyrarbær, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit.

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum, ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.