Héraðsdómur Reykjaness     Dómur  24. september 2021     Mál nr.  S - 2640/2020 :     Lögreglustjórinn á höfuðborgars væðinu   ( Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari )   g egn   Daniel Ryfa   ( Þorgils Þorgilsson  lögmaður)     og   Stefan Pawel Koryczan   ( Jónas Örn Jónasson lögmaður )       Dómur:   Mál þetta, sem  tekið var til dóms 6. september 2021,   var höfðað með ákæru  lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu  2 9 .   september 2020   á hendur ákærð u ,   Daniel  Ryfa, kt.  [...] , til heimilis í Póllandi, og Stefan Pawel Koryczan, kt.  [...] ,  [...] , Reykjavík ;    fyrir fíkniefnalagabrot  með því að hafa í félagi ,   þann   13. febrúar 2018, að  [...]  í  [...] , útbúið tvær kannabisræktanir í sitthvoru rými fasteignarinnar og þannig haft í  vör slum sínum afrakstur ræktunarinnar í sölu -   og dreifingarskyni, það er 388  kannabisplöntur   [...]  Lögreglan lagði hald á framangreindar plöntur  [...] , sem og  ræktunarbúnað   við leit í húsnæðinu.   Telst brot þetta  varða við  2. gr., sbr.   4.,  5. og 6. g r. laga um ávana -   og fíkniefni  nr.  65/1974  og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana -   og fíkniefni og önnur  eftirlit sskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.   Þess er krafist   að báðir ákærðu verði dæmdir til refsingar og   til greiðsl u alls  sakarkostnaðar . Þá er krafist upptöku á  388 kannabisplöntum, 361,04 grömmum af  kannabisefnum og 5.997 grömmum af þurrkuðum kannabisefnum í loftþéttum umbúðum  (29 smellulásapokar), 55 gróðurhúsalömpum, 6 loftsíum, 2 gróðurtjöldum, 52  straumbreytum, 1 1 loftblásara, 1 tímarofa og 2 vatnsdælum er lögregla lagði hald á við  leit í framangreindu húsnæði ákærðu   skv.   6. og 7.  mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og  2. mgr.  14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 , sbr. reglugerð nr. 808/2018 .     2     Kröfur ákærðu eru þær að þeim  v erði gerð sú vægasta refsing sem lög   leyfa .   Þá  gera skipaðir verjendur ákærðu kröfu um  þóknun   sér   til handa.   Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála  og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og v erj endum   ákær ðu   hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.     Forsendur og niðurstaða:   Við fyrirtöku máls ins 6. september sl. féll ákæruvaldið frá hluta sakargifta   í ákæru .  Ákærðu  höfðu  áður  játað að hafa haft í vörslum  sínum og ræktað í sölu og dreifingarskyni  388 kannabisplöntur . S ú játning þeirra tekur að öllu leyti til sakargifta eins og þær standa  eftir nefndar breytingar ákæruvalds. Að þessu gættu þykir   sannað að ákærð u   hafi gerst  sekir  um þá háttsemi sem   þeim   er ge fin að sök í málinu. Er háttsemi ákærðu   réttilega  heimfærð til refsiákvæða   í ákæru .   Samkvæmt öllu þessu verður dómur lagður á málið á  grundvelli 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.   Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins   gekkst ákærði   Daniel   undir  sektargerð  lögreglustjóra á árinu 2011 vegna umferðarlagabrots.  Með dómi Héraðsdóms Reykjaness  9. mars 2017 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir  fíkniefna -   og vopnalagabrot. Þá gekkst ákærði 4. júní 2018 undir sektarg erð  lögreglustjóra þess efnis að hann greiddi 90.000 króna sekt og sætti sviptingu ökuréttar í  þrjá mánuði vegna hraðaksturs.     Með broti sínu nú rauf ákærði skilorð dómsins frá 9. mars 2017. Samkvæmt því og  með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr.  19/1940 ber að taka dóminn upp og  ákveða ákærða refsingu í einu lagi fyrir bæði málin samkvæmt fyrirmælum 77. gr.  almennra hegningarlaga. Þá verður refsing ákærða  jafnframt ák veðin sem hegningar auki  við sektargerðina frá 4. júní 2018 , sbr. ákvæði 78. gr.   nefndra laga , en brot ákærða nú  var framið áður en hann gekkst undir   sektargerðina .   V ið ákvörðun refsingar   ákærða  Daniel   verður  enn fremur  að líta til þess að ræktun ákærð u   var skipulögð og nokkuð  umfangsmikil. Ákærða   Daniel   til málsbóta horfir játning hans. Samkvæmt    öllu því sem  hér hefur verið rakið  og að gættu m fjölda þeirra kannabisplantna   sem   ákærðu voru með  í ræktun   þykir refsing ákærða   Daniel   réttilega ákveðin fangelsi í  12 mánuði. Í ljósi þess  dráttar sem varð á meðf erð málsins  hjá ákæruvaldinu  þykir  rétt að  fresta fullnustu  refsin gar   ákærða   að öllu leyti og skal hún  falla niður að liðnum tveimur árum frá  uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra  hegningarlaga.    3       Samkvæmt vottorði sa kaskrár ríkisins gekkst   ákærði Stefan  undir   tvær sektargerðir   lögreglustjóra   á árunum 2011 og 213 vegna eignaspjalla og fíkniefna -   og vopnalagabrota.  Þá gekkst hann 16. ágúst 2018 undir sektargerð lögreglustjóra þess efnis að hann greiddi  150.000 króna sek t og sætti sviptingu ökuréttar í þrjá mánuði vegna hraðaksturs.   Brot ákærða Stefan  var framið áður en hann gekkst undir síðastnefnda sektargerð  lögreglustjóra.  Refsingu hans ber því að ákvarða  samkvæmt   fyrirmælum 7 8 . gr. almennra  hegningarlaga.   V ið ákvörðu n refsingar innar   verður að líta til þess að ræktun ákærð u   var  skipulögð og nokkuð umfangsmikil. Ákærða   Stefan  til málsbóta horfir játning hans.  Samkvæmt    þessu   og að gættu m fjölda þeirra kannabisplantna   sem   ákærðu voru með í  ræktun   þykir refsing ákærða   Stefan  réttilega ákveðin fangelsi í   níu   mánuði. Í ljósi þess  dráttar sem varð á meðferð málsins hjá ákæruvaldinu  þykir rétt að fresta fullnustu  refsingar ákærða og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms  þessa að telja, haldi hann   almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.   Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og þeirra lagaákvæða sem  vísað er til í ákæru verða ger ðar   upptæk ar þær plöntur ,  fíkniefni   og munir   sem lögregla  haldlagði við leit 13. febrúar 2018 að Dalvegi 24 í Kópavogi , eins og nánar greinir í  dómsorði .   Á grundvelli sakfellingar ákær ðu , sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð  sakamála, verður  þeim  gert að greiða allan sakarkostnað málsin s.   Ákærðu dæmast því til  að greiða   þóknun   verjenda sinna, Þorgils Þorgilssonar og Jónasar Arnar Jónassonar ,   en  þ óknun   lögmannanna   þykir með hliðsjón af tímaskýrslum þeirra og að virtu umfangi  málsins hæfilega ákveðin svo sem í dómsorði greinir.  Þá  verður   á kærð u   gert   að greiða   óskipt annan  sakarkostnað samkvæmt framlögðu sakarkostnaðaryfirliti   lögreglustjóra,  dagsettu 29. september 2020,   samtals  375.068  krónur.   Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.   Dómsorð:   Ákærði,  Daniel Ryfa ,  sæti  fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu  refsing arinnar   og skal  hún  falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms  þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.     Ákærði,  Stefan Pawel Koryczan , sæti  fangelsi í  níu  mánuði, en fresta   skal fullnustu  refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum   tveimur  árum frá uppkvaðningu dóms  þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.      4     Ákærð u   sæti upptöku á  388 kannabis plöntum ,   55 gróðurhúsalömpum,  sex   loftsíum,  tveimur   gróðurtjöldum, 52 straumbreytum, 11 loftblás urum ,  einum   tímarofa og  tveimur   vatnsdælum.  Einnig eru gerð upptæk  361,04 grömm af kannabisefnum og 5.997  grömm af þurrkuðum kannabisefnum .   Ákærði Daniel greiði   þóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar  lögmanns,  612.560  krónur að virðisaukaskatti meðtöldum. Ákærði Stefan   greiði þóknun  skipaðs verjanda síns,  Jónasar Arnar Jónassonar  lögmanns,   683.240   krónur að  virðisaukaskatti meðtöldum . Á kærð u   greið i óskipt 375.068 krónur í annan  sakarkostnað .       Kristinn Halldórsson