Héraðsdómur Suðurlands     Dómur  fimmtu daginn  7 . maí 2020     Mál nr.  S - 164/2020 :     Lögreglustjórinn á Suðurlandi   ( Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi )   g egn   X   ( Jónína Guðmundsdóttir lögmaður )       Dómur   Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 30. apríl sl., er höfðað  með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 28. febrúar sl., á hendur  X     I. fyrir barnaverndarlagabrot   með því að hafa, síðdegis   2018, í heimildarleysi og óleyfi farið inn um ólæsta  hurð að     þar sem barnið  A , var  [..]   heima og haft þar uppi óviðeigandi  samhengislaus ummæli, meðal annars ástarjátningar gagnvart  A   auk þess sem  ákærði reif heyrnatól af  A ,  henti   þeim   í gólfið og   sle ikti svo kinn  A . Jafnframt   með því að hafa dvalist þar áfram þrátt fyrir að  A   hafi skipað honum að fara út  uns ákærði lét að lokum af háttsemi sinni og fór. Framangreind háttsemi ákærða  fól í sér yfirgang, ruddaskap, ósiðlegt athæfi og vanvirðandi háttsemi   gagnvart  A  og var til þess fallin að móðga  A   gróflega.     Telst brot ákærða varða við 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80, 2002.      II. fyrir húsbrot    með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 23. nóvember 2019, í heimildarleysi  og óleyfi farið inn   um ólæsta hurð að  B   og dvalist þar inni uns húsráðendur komu  að honum og vísuðu á dyr.     Telst brot ákærða varða við 231. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.     Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls  sakarkostnaðar.     Á kærði mætti við  þingfestingu málsins   ásamt Jónínu Guðmundsdóttur  lögmanni, sem skipuð var verjandi ákærða að hans ósk.  Ákærði viðurkenndi skýlaust  að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til  skýlausrar játningar ákær ða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að   2     játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði  1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að  aðilum  hafði verið  gefinn kostur á að tjá sig um la gaatriði og ákvörðun viðurlaga.   Um málavexti vísast til ákæruskjals.  Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um  þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða.  Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Sam kvæmt framlögðu  sakavottorði hefur ákærði  ekki áður sætt refsingu .    Refsing ákærða er hæfilega ákveðin   fangelsi í    90 daga . Að virtum atvikum  máls, að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða og  þess að hann hefur ekki áður  sætt refsingu , þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að  liðnum  tveimur   árum   haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr.  19/1940, með áorðnum breytingum.     Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma  ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals  57.328  kr. , auk þóknunar skipaðs verjanda hans sem er hæfilega ákveðin 229.400  krónur, að teknu t illiti til virðisaukaskatts.    Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.     D Ó M S O R Ð   :   Ákærð i ,  X , sæti fangelsi í  90   daga ,  en fresta skal fullnustu refsingarinnar og  skal hún falla niður að liðnum  tveimur   árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr.  almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með áorðnum breytingum.   Ákærði greiði sakarkostnað, samtals 286.728 krónur, þar af þóknun skipaðs  verjanda, Jónínu Guðmundsdóttur lögmanns, 229.400 krónur, að teknu tilliti til  virðisaukaskatts.                  Sólveig Ingadóttir.