• Lykilorð:
  • Líkamsárás

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur þriðjudaginn 16. október 2018 í máli nr. S-277/2018:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

            Mál þetta sem dómtekið er í dag var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðin þann 8. maí 2018 „á hendur X, kt. [...], [...], [...], fyrir líkamsárás með því að hafa, þriðjudaginn 14. mars 2017, veist með ofbeldi að þáverandi sambýliskonu sinni, A, kt. [...], á heimili þeirra að [...] í [...], með því að grípa í hægri handlegg hennar og slá hana í það minnsta einu höggi í andlit. Afleiðingar árásar ákærða voru þær að A hlaut roða á hægri fram- og upphandlegg og roða á vinstri kinn.

            Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hengingarlaga nr. 19/1940.

            Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.”

            Fyrirkall á hendur ákærða, sem hafði að geyma viðvörun samkvæmt 1. mgr. 161. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, var birt í Lögbirtingarblaði. Þrátt fyrir það sótti ákærði ekki þing og ekki var kunnugt um að hann væri forfallaður. Málið verður því dæmt á grundvelli framlagðra gagna og samkvæmt þeim hefur verið færð fram næg sönnun fyrir sekt ákærða. Hann verður því sakfelldur samkvæmt ákærunni, en brot hans er þar rétt fært til refsiákvæðis.

            Ákærði er fæddur í [...] [...]. Hann hefur tvisvar sinnum hlotið dóm fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og fimm sinnum gengist undir lögreglustjórasátt. Hann hefur ekki áður hlotið dóm fyrir ofbeldisbrot. Með hliðsjón af sakarefni þessa máls og 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem og að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Engan kostnað leiddi af meðferð málsins.

            Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness aðstoðarsaksóknari.

            Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.

 

                                                              D Ó M S O R Ð :

            Ákærði, X, sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.