• Lykilorð:
  • Játningarmál
  • Fangelsi
  • Svipting ökuréttar
  • Umferðarlagabrot
  • Ökuréttarsvipting

 

D Ó M U R

Héraðsdóms Reykjavíkur 16. janúar 2019 í máli nr. S-833/2018:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ívari Pálssyni

 

 

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglu­stjóranum á höfuðborgarsvæðinu 11. desember 2018, á hendur Ívari Pálssyni, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir eftirtalin umferðarlagabrot, með því að hafa:

I. Laugardaginn 25. nóvember 2017 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist 8,6 ng/ml tetrahýdrókannabínól og auk þess fannst tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi) um [...] í Reykjavík, við [...], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

II. Fimmtudaginn 22. mars 2018 ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 4,3 ng/ml og auk þess fannst tetrahýdrókannabínólsýra í þvagi) vestur Þverveg í Reykjavík, við Gufuneskirkjugarð, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. 

Teljast brot í báðum liðum varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006.

Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 5. desember 2018, gekkst ákærði undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna og aksturs bifreiðar án þess að hafa endurnýjað ökuskírteini. Þann 14. apríl 2011 gekkst ákærði undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt vegna aksturs undir áhrifum áfengis og brots gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga.

Ákærði er nú í þriðja sinn innan ítrekunartíma fundinn sekur um brot gegn 45. gr. eða 45. gr. a umferðarlaga. Með hliðsjón af dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákvörðuð fangelsi í 45 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ævilangt frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.

Ákærði greiði 185.526 krónur í sakarkostnað.

Benedikt Smári Skúlason, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

 

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Ívar Pálsson, sæti fangelsi í 45 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá uppkvaðningu dómsins að telja.

Ákærði greiði 185.526 krónur í annan sakarkostnað.

 

Benedikt Smári Skúlason